Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra skrifaði:
„Hallalaus fjárlög eru ekki allt. Þó að þannig hættum við að reka ríkið á yfirdætti. Sem er það besta sem ríkið getur gert núna – bæði fyrir veski heimilanna og bókhald fyrirtækjanna.
En á sama tíma erum við að styrkja Ísland.
Á dögunum bárust fréttir af því að staðan á Landspítala hafi ekki verið betri á þessari öld. Nú er loks að takast að stórfjölga hjúkrunarrýmum um land allt.
Við höfum
auðveldað
lífsbaráttuna…
Í síðustu viku var greint frá því að strax í haust hefjast undirbúningsframkvæmdir vegna Fljótaganga. Við höfum stóraukið viðhald og fullfjármagnað vetrarþjónustu á vegum. Og á fimmtudag mun ég ávarpa fjárfestadag innviðafélagsins Ganga og brúar – þar sem verða fulltrúar frá stærstu verkfræðistofum og innviðafjárfestum í Evrópu. Vegna áhuga á að koma að stærri framkvæmdum á borð við Sundabraut og tvöföldun Hvalfjarðarganga.
Í dag gangsettum við Vaðölduver sem kemur strax með aukna orku á kerfið. Og í sumar lækkuðum við raforkureikninginn í dreifbýli og fyrir heimili á köldum svæðum.
Við höfum auðveldað lífsbaráttuna fyrir öryrkja og tekjulægra eldra fólk – með því að festa það í lög að lífeyrir frá TR hækki í takt við laun.
Við höfum náð stjórn á útlendingamálum. Og nú er komið að heildarendurskoðun á veitingu dvalarleyfa og reglum um brottvísanir – ásamt aðgerðum gegn skipulagðri brotastarfsemi.
Loks hefur tekist að stöðva stjórnlausar verðhækkanir á húsnæði. Í frétt frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun í síðustu viku var bent á að hlutfall fyrstu kaupenda hefur ekki verið hærra frá því fyrir efnahagshrunið árið 2008.
Við þurfum ekki að vera sammála um allt í pólitík.
En stundum er gott að staldra við og gleðjast yfir því sem vel gengur á Íslandi.
Þó að enn sé verk að vinna.“