
Björn Valur Gíslason skrifaði:
„Það er auðvitað mikið áfall fyrir ríkisstjórnina að verða undir gegn þjóðinni í atkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna að ESB. Um það þarf ekki að deila.
Það er líka áfall fyrir þjóðina að upplifa nú hið augljósa, að stóra plan ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum virðist aðallega hafa falist í því að klára aðildarviðræðurnar og varaplan ekki í augsýn.
Stjórnarsáttmáli ríkisstjórnarinnar hefst á þessum orðum: „Ný ríkisstjórn gengur samstíga til verka. Fyrsta verk er að ná stöðugleika í efnahagslífi og lækkun vaxta, með styrkri stjórn á fjármálum ríkisins. Um leið mun ríkisstjórnin rjúfa kyrrstöðu og vinna að aukinni verðmætasköpun í atvinnulífi.“
Ekkert af þessu hefur gengið. Ríkisstjórnarflokkarnir eru ósamstíga um aðild að ESB og í andstöðu við meirihluta þjóðarinnar sömuleiðis, efnahagsmálin er á slæmum stað, atvinnuleysi eykst, vextir og verðbólga nálgast kreppuástand.
Ríkisstjórnin þarf ekkert að endilega að segja af sér vegna niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. En að öllu samanlögðu væri kannski rétt að hún endurnýjaði umboð sitt.“