- Advertisement -

Vinstrimenn á Íslandi dansa lítt meðvitaðir með nýfrjálshyggjunni

Vinstrimenn láta líka tekjutengingarnar afskiptalausar og fela Sjálfstæðisflokki einræði í ríkisfjármálum.

Ragnar Önundarson skrifaði:

Arfleifð Reagans, Thatchers, Hayeks, von Mises og Friedmans er allsráðandi í veröldinni. Múrinn féll og sjálfur kommúnisminn með. Þar sem mannfjöldinn er mestur og menn ná ekki utan um það verkefni að huga að velferð hvers og eins, hefur reynst skást, til skemmri tíma litið, að knýja fram hagvöxt og hámarka efnahagslega stöðu heildarinnar. Risavaxin vandamál því tengd bíða handan við hornið. Hagvöxtur og fjölgun mannkyns rekst á þá staðreynd að jörðin og gæði hennar vaxa ekki með. Barnið vex en brókin ekki.

Vinstrimenn á Íslandi dansa lítt meðvitaðir með nýfrjálshyggjunni, vanrækja t.d. að vakta húsnæðismálin og henda unga fólkinu í gin verktaka sem viðhalda skorti og hirða 50-100% álagningu í ljósi skortsins, sem vanræksla sveitarfélaga og afskiptaleysi gerir mögulega. Vinstrimenn láta líka tekjutengingarnar afskiptalausar og fela Sjálfstæðisflokki einræði í ríkisfjármálum. Á þessu ári verða skattar lækkaðir á alla, líka þá sem hafa meira en nóg, þrátt fyrir að aldraðir og öryrkjar séu aðþrengdir.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Sjálfumglaðir stjórnmálamenn allra flokka hafa látið „reka á reiðanum“.

Öldruðum fjölgar ört og verða æ hærra hlutfall af heildinni. Ekki verður séð að félagshyggjuflokkar séu með fullri meðvitund um afleiðingar þess. Húsnæðismál eldri borgara þarf líka að vakta. Eldri borgarar eru núna að upplifa gríðarleg vonbrigði í lífeyrismálum, brostnar vonir um að skylduaðild að lífeyrissjóðum mundi tryggja þeim áhyggjulaust ævikvöld. Vinstri menn „berja hausnum við steininn“ í heilbrigðismálum og reyna að reka tekjulaust kerfi, sem þar með verður alltaf baggi á ríkissjóði. Göran Person, kratinn sænski, breytti þessu í Svíþjóð fyrir 25 árum, af því að það gekk ekki upp.

Okkar samfélag var eitthvert mesta jafnaðarsamfélag veraldar þegar við, sem nú erum á efri árum, vorum ung. Það er að breytast. Sjálfumglaðir stjórnmálamenn allra flokka hafa látið „reka á reiðanum“ – laissez faire, afskiptaleysi og ábyrgðarleysi.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: