- Advertisement -

Kaldar tuskur á krítískum tímum

Tómas Guðbjartsson.

Tómas Guðbartsson skrifar:
Hjúkrunarfræðingar eru tvímælalaust hetjurnar í Covid-19 faraldrinum – enda í langmestri snertingu við sjúklingana. Þá er ég ekki að gera lítið úr hlutverki félaga minna; gjörgæslu og smitsjúkdómalækna eða lungna-, bráðamóttöku- og heimilislækna – sem allir skipa framvarðarsveitina.

En aftur að hjúkrunarfræðingunum – hetjunum sem enn eru samningslausar eftir árs samningaviðræður. Til að bæta gráu ofan á svart voru laun þeirra skert rétt áður en Covid-faraldurinn skall á – og það til að ná auknum sparnaði á LSH. Þetta gerist á vakt VG sem reifir sögðust ætla að styðja við kvennastéttir í þessari ríkisstjórn. Það er eitthvað mikið rangt við þetta allt saman – ekki síst núna þegar þessi hámenntaða stétt – sem bókstaflega hættir lífi sinu til að bjarga öðrum – skuli endurtekið fá svona kaldar tuskur í andlitið.

Erlendis er verið að borga sömu hjúkrunarfræðingum ríflega bónusa – enda verður þessi faraldur ekki unninn án þeirra.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Koma svo – og ekki segja mér að ómögulegt sé að semja vegna launaskriðs á almennum vinnumarkaði. Það er gömul lumma. Alli sjá núna – og hefðu betur séð fyrr – hversu mikilvægt hlutverk þeirra er. Samfélög fungera ekki án heilbrigðiskerfis og þar eru hjúkrunarfræðingar risastórt tannhjól.

Skrifin birtust fyrst á Facebooksíðu Tómasar.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: