Umræðan/Facebook: Sólveig Anna Jónsdóttir er í þeim hópi sem gagnrýna varaformann Sjálfstæðisflokksins harkalega vegna ummæla hans um stöðuna í Palestínu:
„Hrikalegt að sjá fólk sem veit ekkert um alþjóðamál, annað en að best er að kalla forseta Ameríku (hver sem hann er) elsku pabba, tjá sig af svo yfirgengilegu þekkingarleysi og kæruleysi um alvarlegustu málefni samtímans. Og ömurlegt að þurfa að horfast í augu við að það er alveg sama hver er við völd þarna niður frá – skeytingarleysið og kaldlyndið í garð þeirra sem Ameríka hefur ákveðið að eigi að þjást verður alltaf helsta utanríkisstefna lýðveldisins.“