- Advertisement -

Vill opinbera allar nefndir og ráð

Kolbrún Baldursdóttir borgarfulltrúi hefur lagt fyrir borgarráð tillögu um að samþykkt verði  birta á vef Reykjavíkurborgar lista með upplýsingum um allar nefndir, ráð og starfshópa á vegum borgarinnar. Þar skulu jafnframt koma fram upplýsingar um það  hvort um launuð störf sé að ræða og þá fjárhæð þóknana. 

Kolbrún rökstyður má sitt:

Flokkur fólksins leggur það til að settur verði saman ítarlegur listi yfir allar nefndir, ráð og starfshópa sem starfa á vegum borgarinnar og hverjir eru launaðir og hver sé upphæð þóknana. Listann skal birtur á vef borgarinnar þar sem hann er sýnilegur, aðgengilegur og uppfærður reglulega.  

Til að auka trúverðugleika er þrennt sem skiptir mestu máli, gegnsæi, heiðarleiki og lýðræðisleg vinnubrögð.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Til að eyða efasemdum og vantrausti er fátt eins öflugt og að veita ítarlegar upplýsingar um hlutina og gera það af heiðarleika og einurð.

Fjölmargir borgarbúar hafa spurt um :

  1. Nefndir, ráð og hve margir stýri- og starfshópar og nefndir aðrar en fastanefndir og stjórnir eru á vegum borgarinnar. Fólk vill og á rétt á að þessar upplýsingar séu aðgengilegar og uppfærðar reglulega.
  2. Hvaða nefndir/hópar, stjórnir eru launaðar og hverjar eru þóknanirnar?
  3. Hve margir þiggja þóknanir vegna setu í nefndum, ráðum, hópum og stjórnum?

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: