Menn sem græða svo mikið á fíkn ungmennanna okkar að þeir komast í fjölmiðla fyrir fasteignaumsvif og metgróða.
Lára Sigurðardóttir.
Umræðan/lýðheilsa: Lára Sigurðardóttir, læknir og doktor í lýðheilsuvísindum, skrifaði eftirfarandi:
„Á þeim sjö árum sem ég varði við nám í lýðheilsuvísindum lærði ég ýmislegt um forvarnir, en er fullmeðvituð um að ég veit ekki allt.
Frá því ég útskrifaðist 2015 hef ég eytt ótal kvöldstundum, helgarfríum, jafnvel jólafríum og sumarfríum launalaust í að munnhöggvast við menn sem vilja fá frelsi til að selja og markaðssetja fíkniefni – hvort heldur nikótín eða áfengi. Menn sem græða svo mikið á fíkn ungmennanna okkar að þeir komast í fjölmiðla fyrir fasteignaumsvif og metgróða.
Við töpuðum baráttunni við nikótínkóngana.
Á sama tíma fæ ég ekki krónu fyrir að koma með mótrök, sem eiga að vera svo augljós að mér finnst þeirra eigi ekki að vera þörf á blaði. Ég hef hinsvegar fengið ótal hótanir og eggjaköst á heimilið okkar.
Nú finn ég fyrst áþreifanlega að mér er farið að fallast hendur. Síðustu tíu ár taldi ég mig vera að upplýsa okkur um mikilvægi áfengis- og tóbaksvarna, en alltaf endum við á byrjunarreit eða nokkrum skrefum aftar. Og við töpuðum baráttunni við nikótínkóngana, þar sem um þriðjungur ungmenna borgar nú daglega undir hallir þeirra.
Tilhugsunin um að hafa þurft að senda þessa grein frá mér gefur mér hnút í magann – ekki út af ásökunum mannsins sem um ræðir – heldur vegna eftirsjár. Í huganum ómar rödd drengjanna minna þegar þeir endurtekið báðu mig um að spila eða leika og ég svaraði „kannski á eftir, mamma þarf aðeins að klára í tölvunni.“ Man ekki hvenær rödd þeirra þagnaði.
Nú vona ég innilega að við getum sameinast um að byggja upp heilbrigt samfélag þar sem flestir fái að þroskast og dafna án þess að verða fyrir stöðugu áreiti frá fíkniefnakóngum sem vilja fanga sálu okkar til að tryggja eigin gróða.
Tímann bak við tölvuna fæ ég ekki aftur, en framundan bíður mín það verkefni að komast að því hvernig ég fæ drengina mína til að vilja aftur leika við mig.