Ef forstjórar Wow og Play hefðu reiknað og valið alvöru vöxt en ekki þenslu, væru þeir ekki í þeim sporum sem þeir eru nú

Ragnar Önundarson:
„Þetta er ekki flókið, en mikilvægt og skilur á milli feigs og ófeigs. Ef forstjórar Wow og Play hefðu reiknað og valið alvöru vöxt en ekki þenslu, væru þeir ekki í þeim sporum sem þeir eru nú.“
Viðskipti:„Nú hafa landsmenn fylgst með dauðastríði tveggja flugfélaga á 7-8 ára tímabili. Ástæða er til að rifja upp harðasta kjarnann í fjármálafræði fyrirtækja:“
„Á hlutabréfamarkaðnum ríkir á hverjum tíma ávöxtunarkrafa, sem álag á áhættulausa ávöxtun ríkisskuldabréfa. Sú ávöxtun hefur oftast 5,5-6% síðustu 100 árin. Hún næst á vel áhættudreift safn hlutabréfa. Allar einstakar atvinnugreinar og fyrirtæki hafa að auki dálítið álag vegna sérstakrar áhættu greinnarinnar, svonefnt “beta-álag”. Þetta þýðir að öll almenningshlutafélög og stór fyrirtæki þurfa að þekkja ávöxtunarkröfu sína á hverjum tíma og muna að hún breytist með grunnávöxtuninni.
Öll ný verkefni félags, öll aukning, þurfa að uppfylla ávöxtunarkröfuna: Nýjar vörur, nýjar vélar, nýir viðskiptavinir osfrv. Aukning sem uppfyllir hana er nefnd vöxtur og styrkir félag. Sú sem ekki gerir það er kölluð þensla og veikir félag. Stjórnandi, sem nennir ekki eða kann ekki að reikna, setur fyrirtækið á hausinn.
Forstjórar ættu fremur að verja tíma sínum í að hugsa og reikna.
Sumir finna upp á að setja hærri ávöxtunarkröfu. Það eru mistök. Þeir fá minni og áhættusamari viðskipti en aðrir. Rétta leiðin er að verðleggja hóflega skv. kröfunni og fá meiri viðskipti við bestu viðskiptavinina. Það er alvöru vöxtur.
Forstjórar ættu fremur að verja tíma sínum í að hugsa og reikna, en að dilla sér í fjölmiðlum. Stærð er svo auðséð, fjöldi áfangastaða, flugvéla og starfsmanna er umfjöllunarefni fjölmiðla. Kynt er undir hégóma, en umræðunni ekki beint að því sem skiptir máli.
Þetta er ekki flókið, en mikilvægt og skilur á milli feigs og ófeigs. Ef forstjórar Wow og Play hefðu reiknað og valið alvöru vöxt en ekki þenslu, væru þeir ekki í þeim sporum sem þeir eru nú.“