- Advertisement -

Hef aldrei heyrt af svona fyrirkomulagi og myndi ekki samþykkja það sjálfur

Landsvirkjun:

Vilhjálmur Þorsteinsson skrifaði:

„Ég hef setið í allmörgum stjórnum fyrirtækja um ævina, þar á meðal skráðum fyrirtækjum og fyrirtækjum undir eftirliti FME, innanlands og erlendis. Ævinlega hefur verið stuðst við þá meginreglu að forstjóri/framkvæmdastjóri sitji stjórnarfundi nema þegar verið er að ræða frammistöðu og/eða umbun viðkomandi, sem er oftast gert einu sinni á ári á fundi sem framkvæmdastjóri er meðvitaður og upplýstur um. Starfsreglur stjórnar eu allajafna skýrar um þetta verklag.

Það kemur mér því á óvart að stjórnarformaður Landsvirkjunar telji það venjulega og eðlilega stjórnarhætti að stjórn hittist án forstjóra fyrir hvern einasta stjórnarfund og taki þannig í raun alltaf aukafund án hans. Ég hef aldrei áður heyrt af svona fyrirkomulagi og myndi ekki samþykkja það sjálfur, hvorki sem stjórnarmaður né sem forstjóri.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: