- Advertisement -

Flóttinn frá sannleikanum mun halda áfram

Lansdsvirkjun:

Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, hefur setið í stjórn Landsvirkjunar. Hún skrifaði:

Flestir stjórnendur og stjórnmálamenn þekkja mikilvægustu PR-regluna: Ef þér veður á, gerir mistök o.s.frv., gildir að SEGJA SATT FRÁ og GERA ÞAÐ STRAX!

Stjórnarformaður Landsvirkjunar, Brynja Baldursdóttir og Daði Már fjármálaráðherra féllu rækilega á þessu einfalda prófi aðspurð um ástæður þess að Hörður Arnarson, forstjóri fyrirtækisins til 17 ára, kaus að segja upp. Þvert á þessa alþekktu reglu reyndu þau bæði að gera lítið úr málinu og breiða yfir raunverulegan sannleika með hálfkveðnum vísum og hroka. Þannig sagði stjórnarformaðurinn starfslok Harðar „fyrr en ætlað var“ hvað sem það á að þýða! og gaf í skyn að Hörður, sem var forstjóri Marels 1999-2009, kynni ekki að vinna með „faglegum“ stjórnarmönnum eins og henni sjálfri og nýrri stjórn fyrirtækisins. Þá sagði ráðherrann á Alþingi einhvern ágreining hafa verið um „stjórnarhætti“ og „nálgun um ákvarðanatöku“ en enginn efnislegur ágreiningur hefði verið um annað. Hann fullyrti að þar með væri „öll sagan sögð“.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þessi flótti frá
sannleikanum mun
halda áfram.

Valdmörkin

Við vitum hvert framhaldið varð og líka hvað mun koma næst!

Fjármálaraðherrann og stjórnarformaðurinn eru þegar byrjuð að bakka og hafa orðið að kyngja því – þó ekki vilji þau viðurkenna mistökin – að ágreiningurinn hafi snúist um valdmörk forstjóra og stjórnar. Þannig hefur stjórnin fundað reglulega án forstjórans, sem er stórundarlegt þar sem lög Landsvirkjunar (6. gr.) tilgreina nákvæmlega hvar valdmörkin liggja: „Stjórn og forstjóri fara með stjórn fyrirtækisins.“ Og: „Forstjóri skal eiga sæti á stjórnarfundum.“ Stjórn og forstjóri fara sem sagt SAMAN með stjórn Landsvirkjunar og vettvangur samstarfsins eru stjórnarfundir.

En áfram reyna bæði ráðherra og stjórnarformaður að gera lítið úr þessum fundum stjórnar án forstjórans. Þetta hafi bara verið hádegisverðarfundir haldnir fyrir stjórnarfund til að fara yfir efni fundarins, segir formaðurinn og ráðherrann segir ríkið ekki geta bannað þessu fólki eða öðrum að hittast yfir smábita!

Þessi flótti frá sannleikanum mun halda áfram – það kennir sagan okkur. Smám saman mun þó fleira og fleira koma í dagsljósið, togað uppúr fólki með töngum, engum til sóma. Það kennir sagan okkur líka. Það er einfaldlega ekki hægt að þegja um efnislegan ágreining sem bitnar á stjórnun stærsta og mikilvægasta fyrirtækis í eigu þjóðarinnar. Snakki um stjórnarhætti og matarbita verður ekki trúað. Og ekki bætir úr skák að fjármálastjóri Landsvirkjunar til fjölda ára hefur einnig ákveðið að fara frá fyrirtækinu.

Ég átti sæti í
stjórn Landsvirkjunar
í 14 ár.

Spurningum fjölgar

Eins og staðan er geta menn aðeins getið sér til um raunverulegar ástæður: Hvað var ákveðið, óbókað, á lokuðum fundum stjórnar? Var þar rætt um arðgreiðslur til ríkisins? Óskaði ráðherrann eftir hærri arðgreiðslu til að tryggja núllið? Var þar rætt um stærsta og mikilvægasta efnahagsmál Íslands nú um stundir – endursamninga við ALCOA eftir 20 ára óbreyttan samning um lægsta raforkuverð í heimi? Var þar fjallað um viðbrögð við áfellisdómi Samkeppniseftirlitsins sem krafði Landsvirkjun um 1,4 milljarða í sekt, en var gert afturreka í síðustu viku? Var rætt um að selja hluta Landsvirkjunar? Hvers vegna var forstjórinn látinn víkja af bókuðum fundum stjórnar? Spurningarnar eru margar og þeim mun fjölga eftir því sem tíminn líður.

Ég átti sæti í stjórn Landsvirkjunar í 14 ár, skipuð af ráðherrum margra flokka og eins og aðrir stjórnarmenn aðeins bundin af því að vinna að hagsmunum fyrirtækisins (5. gr.). Rétt er að benda á að ákvæðum um skyldur og réttindi stjórnarmanna hefur ekki verið breytt eftir pólitíska skipun ráðherrans á „faglegum“ stjórnarmönnum. Stjórnarfundir án forstjóra og annarra starfsmanna Landsvirkjunar hafa verið haldnir einu sinni á ári til að meta árangur stjórnarstarfanna og gera tillögur um launamál forstjóra og stjórnarmanna. Þessir fundir voru bókaðir og í fundaráætlun, undirbúnir af starfsmönnum fyrirtækisins. Þetta eru einu stjórnarfundir Landsvirkjunar sem ég hef setið án forstjóra. Og ef þannig vildi til að einhverjir stjórnarmenn fengju sér bita fyrir eða eftir stjórnarfund, þá var það í matsal með starfsmönnum.

…nýrri stjórn
er ætlað að
vera ríki í ríkinu…

Eigendurnir eiga betra skilið

Starfsemi og rekstur Landsvirkjunar er í uppnámi og traust til fyrirtækisins hefur borið skaða, ekki vegna uppsagnar Harðar og fjármálastjórans, heldur vegna þess hvernig ráðherra og stjórnarformaður brugðust við í aðdraganda og eftirleik uppsagnanna. Það er óþarfi að ausa Hörð Arnarson lofi eins og bæði gera milli þess sem þau væna hann um lygar – þjóðin veit hvaða árangri Hörður hefur skilað á 17 árum.

Það er hins vegar ástæða til að óttast framhaldið, því fjármálaráðherra sjálfur virðist standa að baki þessum nýju „stjórnarháttum“ og hefur lýst fullu trausti á stjórn Landsvirkjunar vegna þeirrar gagnrýni sem hún hefur hlotið eftir uppsögn Harðar. Ráðherrann lýsti fjálglega og af ógleymanlegum hroka þeim nýju vinnubrögðum að losa um tengingu við Alþingi, sem áður tilnefndi í stjórnina, en skipa þess í stað sjálfur einhendis „faglegri“ stjórnarmenn. Nú er komið á daginn að nýrri stjórn er ætlað að vera ríki í ríkinu, hafinni yfir forstjóra og lög um Landsvirkjun og jafnvel án tengsla við ráðuneytið, sem hefur að sögn hafnað því að funda með forstjóra um mikilvæg mál. Þetta setur stefnu ráðherrans gagnvart ríkisfyrirtækjum almennt í nýtt ljós.

Þjóðin sem er eigandi Landsvirkjunar á rétt á því að ráðamenn segi SATT OG RÉTT FRÁ. Og þjóðin á skilið betri umsjónarmenn með dýrmætri eign sinni en þá sem nú eru við völd.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: