Uppsagnir í Reykjavík:
Jóhann Þorvarðarson skrifar:
Undanfarna mánuði hefur borgarstjóri og meirihlutinn málað dökka mynd af fjárhag Reykjavíkurborgar. Tónninn hefur oft verið sá að borgin standi nánast á barmi fjárhagslegs ófremdarástands og að harkalegur niðurskurður sé eina leiðin fram á við. Hundruðum starfa er fórnað og borgarbúum sagt að staðan sé svo alvarleg að ekkert svigrúm sé til staðar.
Vandamálið er að tölurnar segja aðra sögu.
Heimsendafréttir
úr Ráðhúsinu.
Þegar rekstur Reykjavíkurborgar er skoðaður yfir síðustu fimm ár kemur í ljós að tekjur hafa vaxið úr 121,6 milljörðum króna í 154,4 milljarða. Það jafngildir um 5% meðalársvexti. Kostnaður hefur einnig aukist, en hægar, eða um rúm 4% á ári.
Það er einmitt þróunin sem rekstrarhagfræðingar vilja sjá. Þegar tekjur vaxa hraðar en kostnaður styrkist reksturinn.
Niðurstaðan birtist í rekstrarframlegðinni, þeim hluta tekna sem stendur eftir til að mæta afskriftum, vöxtum og fjárfestingum. Framlegðin hefur hækkað úr 17,8% í 22,3% á fimm árum. Í krónum talið hefur hún aukist um tæplega 45%.
Grunnrekstur borgarinnar er því ekki aðeins stærri en áður heldur jafnframt hagkvæmari. Þetta eru ekki einkenni rekstrarkreppu.
Á fyrri hluta þessa árs skilaði grunnrekstur A- og B-hluta borgarinnar um 35 milljörðum króna í afgang áður en tekið er tillit til afskrifta og fjármagnsliða. Það er öflug niðurstaða í hvaða samanburði sem er. Samt er almenningi stöðugt boðið upp á heimsendafréttir úr Ráðhúsinu.
Þegar nánar er skoðað hvaðan hallinn eftir afskriftir og fjármagnsliða kemur (hann er 5 milljarðar króna) blasir við önnur mynd. Stærsti einstaki áhrifaþátturinn er fjármagnskostnaður sem nálgaðist 20 milljarða króna. Reykjavíkurborg ræður hins vegar hvorki stýrivöxtum né verðbólgu.
Skuldsetning
er ekki það sama
og rekstrarkreppa.
Háir vextir hafa bitnað á heimilum, fyrirtækjum og sveitarfélögum um allt land. Þegar skuldarar landsins greiða hærri vexti hækkar fjármagnskostnaður borgarinnar einnig. Sá kostnaður er ekki til kominn vegna þess að leikskólar, sundlaugar, bókasöfn eða sorphirða séu rekin verr en áður.
Þessu til viðbótar eru nokkrir stórir liðir í uppgjörinu einskiptisliðir eða bókhaldslegar færslur. Þar má nefna kostnað vegna flutnings verkefna til ríkisins, niðurrif eigna, verkefni sem hætt hefur verið við og matsbreytingar eigna hjá Félagsbústöðum. Slíkir liðir geta haft veruleg áhrif á afkomu eins árs án þess að um fjárútlát sé að ræða.
Auðvitað er ekki þar með sagt að allt sé í lagi.
Skuldsetning Reykjavíkurborgar gefur tilefni til umræðu þó eiginfjár hlutfallið sé hátt. Skuldir verða ekki til af sjálfu sér og það er fyllsta ástæða til að fara gaumgæfilega yfir fjárfestingar, framkvæmdir og framtíðarskuldbindingar borgarinnar. En það er önnur umræða.
Skuldsetning er ekki það sama og rekstrarkreppa.
Það eru tveir ólíkir hlutir að reka þjónustuna með afgangi annars vegar og bera þungan fjármagnskostnað hins vegar. Sá greinarmunur hverfur í málflutningi Hildar borgarstjóra og meirihluta hennar.
Stundum virðist jafnvel sem meiri áhersla sé lögð á að réttlæta niðurskurð en að lýsa stöðunni af yfirvegun. Þá verður barlómsræðan markmið í sjálfu sér.
Það var óþarfi að
reka allt
þetta fólk!
Staðreyndirnar eru þrjóskar. Þær sýna borg sem hefur aukið tekjur sínar, bætt framlegð sína og styrkt grunnrekstur sinn. Þær sýna ekki borg á barmi fjárhagslegs hruns.
Það er því erfitt að finna heimsendann í reikningunum.
Kannski er kominn tími til að umræðan um fjárhag Reykjavíkurborgar taki mið af því sem stendur í bókhaldinu fremur en því sem hentar hverju sinni í pólitískum málflutningi. Bókhaldið er nefnilega talsvert bjartsýnna en borgarstjórinn. Og það var óþarfi að reka allt þetta fólk!