- Advertisement -

Kannski bjargar einhver andlitinu en börnin farast á meðan

Samfélagið:

Jón Gnarr skrifaði:

„Ég hef bent ítrekað á þennan skammarblett á samfélagi okkar og hvernig verið er að neita börnum um þá meðferð og þjónustu sem þau eiga rétt á. Ég hef hitt nær alla sem að málaflokknum koma, bæði stjórnendur, ráðherra og fólkið á gólfinu. Ég hef rætt við lögregluna. Ég hef fundað með foreldrum og aðstandendum, hvatt til breytinga og stungið upp á einföldum lausnum. Ég hef átt óteljandi fundi með Umboðsmanni barna, sem tekur í sama streng og ég. Guðmundur Fylkisson líka.

Ég hef verið ákveðinn en lagt mig fram um að vera lipur og samvinnufús og sýnt æðruleysi og þolinmæði. En hún er alveg að þrotum komin. Ég skil ekki þessa fyrirstöðu og aðgerðaleysi. Það er ekki einu sinni verið að spara neitt. Virk úrræði væru bæði miklu árangursríkari og ódýrari.

Það þarf ekki að „uppfæra ferla“ „gera útekt á stöðu málaflokka“ eða „meta hvað hafi farið úrskeiðis“ fyrir löngu síðan.

Þetta tal um „drengi“ og „börn með fjölþættan- vanda eða stuðningsþarfir gerir þetta líka þokukennt og yfirþyrmandi. Og þessi vandi fellur heldur ekki undir „mjúku málin“ einsog oft er látið í veðri vaka.“ Aðstæður og örlög þessara barna eru einhverjar þær harðneskjulegustu sem þekkjast og eyðileggja heilu fjölskyldurnar. Nú eru 2 ár liðin frá því að 17 ára strákur lét lífið, alla mannsævina sem hann átti fyrir höndum, í skelfilegum eldsvoða á Stuðlum. Í umsjá yfirvalda. Af skýrslum að dæma þá brást allt. Málið er nú komið á borð Héraðssaksóknara og rannsakað sem „manndráp af gáleysi“ og 12 manns með réttarstöðu sakbornings.

Þetta eru heldur ekkert svo mörg börn. Brýnasta forgangsmálið eru strákar. Við höfum mismunað þeim, verið með langtímaúrræði fyrir stelpur en ekkert fyrir stráka. Ég reyndi að tala fyrir því að nota sérhannað húsnæði í Skagafirði að Háholti. Það er sérstaklega hannað til að reka svona starfsemi. Það var enginn sem sýndi því áhuga. Ég fékk þau svör að það væri „of langt í burtu.“ Síðan hvenær færðist Skagafjörður svona langt í burtu?

Það er langtímavistun fyrir stelpur í Bjargey í Eyjafirði. Er Eyjafjörður ekki soldið langt í burtu?

Við vorum einu sinni búin að koma upp ágætis kerfi sem samanstóð af ýmsum úrræðum en svo gerðist það í Hruninu að flestum þeirra var lokað vegna fjárskorts og okkur hefur mistekist að koma þeim aftur á fót. Okkur vantar úrræði, ekki eftir 5 ár eða 10 heldur núna. Fólk á ekki að þurfa að fylgja börnum sínum til Afríku til að fá hjálp fyrir þau. Meðferð getur ekki kallast meðferð ef hún felur enga meðferð í sér. Og það bætir ekkert að kalla úrræðaleysi úrræði. Kannski bjargar einhver andlitinu en börnin farast á meðan. Og svo bíðum við þetta af okkur framað næsta harmleik.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: