- Advertisement -

Tveir þingmenn í fjárlaganefnd með meira en eitt hundrað fyrirspurnir

Stjórnmál:

Sigurjón Þórðarson skrifaði:

Nú hafa þingmenn Sjálfstæðisflokksins þeir Guðlaugur Þór og Njáll Trausti í fjárlaganefnd þingsins lagt fram á annað hundrað spurningar til stjórnarráðsins um allt og ekki neitt í tengslum við fjárlagafrumvarpið sem nú er til umfjöllunar. Textinn er það umfangsmikill að lengd hans jafnast á við þokkalega jólabók.

Í fyrirspurnarflóði þingmannanna eru m.a. 5 spurningar um sprengjueyðingarsveit gæslunnar og spurningar sem snúa á engan hátt að fjárhagsmálum s.s.:

„Hvaða heiti eru notuð um sérhæfða starfsemi Landhelgisgæslunnar og hvaða starfs- eða tignarheiti eru notuð um starfsfólk hennar í opinberum kynningum, erlendu samstarfi og æfingum? Hver samþykkti heitin og hvenær? Skýrið hvort þeim fylgi breytingar á verkefnum, stjórnunarheimildum eða valdheimildum og vísið til viðeigandi ákvarðana. Sýnið sérstaklega stöðu ársins 2025, breytingar árið 2026 frá þeirri stöðu og fyrirhugaðar breytingar samkvæmt fjárlagafrumvarpi 2027.“

———————————————————-

Er ég verulega ósáttur við fyrirspurnirnar eða sár líkt og fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins Vilhjálmur Árnason er út í fulltrúa stjórnarandstöðunnar í Reykjanesbæ.

Nei alls ekki en spurningaflóðið er upplýsandi um billeg vinnubrögð stjórnarandstöðunnar og segir meira um ganga mála en tíðar einræður Guðlaugs Þórs í Morgunblaðinu sem settar eru fram í formi frétta um ríkisfjármálin.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: