- Advertisement -

Fer í hart gegn DV

Fjölmiðlar Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðarkona Hönnu Birnu Kristjásdóttir, ætlar í hart gegn DV. Í yfirlýsingu frá henni segir:

„Í frétt í DV í morgun um rannsókn í tengslum við meintan leka trúnaðargagna úr innanríkisráðuneytinu vill undirrituð taka fram að í þeirri umfjöllun eru svo alvarleg ósannindi að ég hef nú í samráði við lögmann ákveðið að leita réttar míns gagnvart miðlinum.

Lýtur það að umræddri umfjöllun blaðsins, en einnig að öðrum og ótal ósönnum fréttum DV um þetta mál, þar sem blaðið hefur ítrekað kosið að fella dóma eða búa til atburðarrás sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum.

Eins og ítekað hefur komið fram mun ég ekki frekar en aðrir starfsmenn ráðuneytisins, tjá mig frekar um málið á meðan rannsókn þess stendur yfir.  Það er von mín að henni ljúki brátt svo umræðan geti farið að snúast um staðreyndir fremur en órökstuddar dylgjur.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: