- Advertisement -

Brynjar vill ekki forseta

„Ég hef aldrei almennilega skilið af hverju við erum að kjósa forseta meðan fyrirkomulag okkar stjórnskipunar er þingræði. Það er bitamunur en ekki fjár að kjósa vinsælasta manninn í partýinu sem þjóðhöfðingja en að djobbið gangi í erfðir hjá mektarfjölskyldu,“ skrifar þingmaðurinn Brynjar Níelsson.

Guðmundur Ólafsson hagfræðingur benti Brynjari á að hér sé frekar flokksræði en lýðræði.

Áfram með Brynjar: „Svo er óheyrilega þreytandi að upplifa reglulega forsetakosningar þar sem frambjóðendur eru að lofa hinu og þessu fyrir kjósendur sem er ekki í þeirra valdi að efna. Nóg er að slíkum loforðum í venjulegum þingkosningum.“

Svo leggur Brynjar fram eftirfarandi tillögu: „Legg til að embættið verði aflagt um leið og við komum fyrir í stjórnarskránni ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslu. Nema að við viljum taka upp stjórnskipunar fyrirkomulag að hætti Frakka og Bandaríkjamanna, sem er að vísu aðeins viðameiri breyting. Veit að ég er í minnihluta með þessa skoðun.“

Brynjar endar skrif sín með fimmaurabrandara: „Merkilegt hvað mínar snjöllu hugmyndir fá alltaf litlar undirtektir.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: