- Advertisement -

Jens Garðar segir fornleifafræðinga vonast eftir að; „…fá einhvern bita af þessari skattahækkun.“

Segir fornleifafræðinga vonast eftir að; „…fá einhvern bita af þessari skattahækkun.“

Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokkinsins og fyrrum formaður SFS, sagði á Alþingi:

„Það er um hálft ár þangað til þetta frumvarp á að taka gildi. 26 sveitarfélög eru búin að senda inn umsagnir, mjög alvarlegar. Þær eru meira að segja sendar inn á þeim tímapunkti þegar við héldum að gjaldið væri jafnvel lægra en það er. Starfsgreinasambandið, Félag skipstjórnarmanna, tæknifyrirtæki í sjávarútvegi, Kerecis og fleiri hafa sent inn mjög alvarlegar athugasemdir við þetta frumvarp.

Það hafa reyndar komið umsagnir sem hafa tekið undir þetta frumvarp, t.d. frá Félagi fornleifafræðinga sem vonast eftir því að fá einhvern bita af þessari skattahækkun. En það væri sómi að því og það er engin skömm að því að taka þetta frumvarp til baka, tala við sveitarfélögin, velta fyrir sér afleiðingunum og koma svo með það aftur. Það liggur ekkert á.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: