Sandkorn: Jón Pétur Zimsen á Alþingi:
„Almennt eru skattar til þess fallnir að kreista súrefnið úr atvinnulífinu en ekki glæða bálin eins og físibelgurinn gerir. Það er í raun kannski munurinn á hugmyndafræðilegri pólitík vinstri og hægri; hægra fólk treystir atvinnulífinu betur fyrir eigin fjármunum, treystir því til að koma peningunum í vinnu þannig að fleiri fái vinnu, fleiri borgi skatta og meiri skatta. Fyrir vikið verður til meiri peningur í samneysluna. Það er bara einfalda pólitíkin í því.“