- Advertisement -

Snorri sakar stjórnvöld um lygar

Alþingi: Snorri Másson hélt þingræðu þar sem hann sakaði ríkisstjórnina um lygar:

„Íslensk stjórnvöld hafa orðið uppvís að því að segja ósatt, aðferð sem gengur einnig undir því nafni að ljúga. Þetta myndi ég aldrei segja af léttúð heldur er þetta raunverulega raunin. Á vef Stjórnarráðsins segir um nýja skýrslu, með leyfi forseta:

„Helstu niðurstöður skýrslunnar eru að kostnaðurinn við íslensku krónuna sé verulegur og líklega að jafnaði meiri en sá ábati sem fylgir sjálfstæðum gjaldmiðli.“ — Og fyrirsögnin er: „Kostnaður af krónu líklega meiri en ábatinn.“

Ég hef sjálfur leitað hátt og lágt í þessum pappír.

„Allir helstu fjölmiðlar sem vanir eru að birta fréttir frá Stjórnarráðinu tóku þetta eðlilega upp en svo fóru menn að lesa umrædda skýrslu. Kom þá upp úr dúrnum að þessa niðurstöðu, um að kostnaður af krónu sé líklega meiri en ábatinn, er hvergi að finna í skýrslunni eins og Jón Helgi Egilsson hagfræðingur fór m.a. vel yfir í grein í Morgunblaðinu.

Ég hef sjálfur leitað hátt og lágt í þessum pappír og get fullyrt að hvergi er því lýst að þetta sé niðurstaða skýrslunnar. Þótt það sé flókið er auðvitað hægt að framkvæma kostnaðar- og ábatagreiningu af gjaldmiðli en það er ekki gert í þessari skýrslu eins og þó er ranglega gefið í skyn. Sjálfur höfundur skýrslunnar, formaður skýrslunefndarinnar, var síðan í Kastljósi í gær og var beinlínis spurð hvort skýr niðurstaða hefði fengist um hvort kostirnir af krónu vegi þyngra en ókostirnir. Svarið var: „Fyrirmæli skýrslunefndarinnar voru að útbúa gögn og alls ekki að komast að niðurstöðu. Við erum öll útlendingar, ekkert okkar fjögurra er íslenskt, og við göngum frá skýrslunni með hlutlaust mat, umfjöllun um kosti og ókosti auk varnaðarorða um upptöku evrunnar.“ — Fyrirmælin voru: Alls ekki að komast að niðurstöðu.“

Snorri hélt áfam: „Við stöndum frammi fyrir stórri ákvörðun í ágúst um það hvernig við tryggjum best hagsmuni okkar Íslendinga og framtíðarkynslóða og að mínu mati er það utan Evrópusambandsins. Ég mun leitast við að færa fyrir því rök á grundvelli raunverulegra staðreynda á næstu mánuðum. Það er hins vegar grátlegt ef ríkisstjórnin hyggst misnota það traust sem almenningur ber til stjórnvalda til að segja fólki ósatt í trausti þess að fæstum er það gefið að verja tíma sínum í að lesa 220 bls. skýrslur á ensku um gjaldmiðla og efnahagsmál. Við treystum yfirleitt öðrum til að lesa slíkar skýrslur, fjölmiðlum, sérfræðingum, stjórnvöldum, og greina okkur svo frá niðurstöðu sinni. En það er þá lágmarkskrafa að þeir segi satt. Að víkja frá því er einfaldlega grafalvarlegt mál og ég vona innilega að það sé ekki það sem koma skal.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: