- Advertisement -

Höfum lækkað skuldahlutfallið

„Bandaríkin eru með tvöfalt hærra hlutfall af landsframleiðslu en Ísland og Ítalía þar ögn fyrir ofan.“

Alþingi: Hér er kafli úr ræðu Dags B. Eggertssonar um Fjármálaáætlunina:

„Á því eina ári sem liðið er síðan ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við höfum við líka séð umtalsverða lækkun skulda ríkisins samkvæmt alþjóðlegum mælikvarða þar sem skuldir ríkja eru metnar. Þegar ríkisstjórnin tók við voru þær, eins og sést í síðustu fjármálaáætlun, um 59,3% en eru núna allt að 6% lægri. Það er auðvitað vegna sölu á Íslandsbanka annars vegar og hins vegar uppgjöri vegna ÍL-sjóðs. Nákvæmar tölur munum við án efa fara yfir í fjárlaganefnd og birta með í nefndarálitinu eins og gert var í fyrra. En það er fróðlegt að bera saman skuldahlutföll Íslands miðað við önnur lönd.

Þrátt fyrir þau áföll sem við höfum verið að takast á við undanfarin ár er skuldastaðan fyrir neðan hið alþjóðlega viðmið, 60%, raunar fyrir ofan flest hinna Norðurlandanna ef frá er talið Finnland sem er nokkuð fyrir ofan og hefur ekki notið nálægðar við Rússland undanfarin ár, svo vægt sé til orða tekið, heldur hefur það haft mikil áhrif á efnahag í Finnlandi sem áður hafði lagt áherslu á að rækta frekar en hitt viðskipti við Rússland til að reyna að stuðla að friði í þeim heimshluta, sem mistókst hrapallega. En það er alls ekki á reikning Finna, þvert á móti. Við sjáum hins vegar að lönd eins og Bretland, Frakkland, og sérstaklega Bandaríkin og Ítalía, eru með umtalsvert hærri skuldir. Bandaríkin eru með tvöfalt hærra hlutfall af landsframleiðslu en Ísland og Ítalía þar ögn fyrir ofan.“

Hér má lesa alla ræðuna.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: