- Advertisement -

Fórnuðu öllu til varnar veiðigjaldsmálinu

„En kannanir sýna að þar sáðu þessir þrír flokkar ekki til góðrar uppskeru.“

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir.
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir.

„Með málþófi og tafaleikjum tókst Sjálfstæðisflokki, Miðflokki og Framsóknarflokki að koma í veg fyrir samþykkt 16 frumvarpa Viðreisnar, 10 frumvarpa Samfylkingarinnar og 9 frumvarpa ráðherra Flokks fólksins. Þeirra á meðal er frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um breytingar á húsaleigulögum sem ætlað er að stórbæta réttindi leigjenda með skráningu allra leigusamninga og þaki á hækkun húsaleigu. Frumvarp um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks var ekki heldur gefið grið,“ skrifar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir þingkona Flokks fólksins.

„Það var sorglegt að sjá jafnt reyndari þingmenn jafnt sem óreynda varaþingmenn stjórnarandstöðunnar leggja allt í sölurnar í vörnum fyrir stórútgerðina. En kannanir sýna að þar sáðu þessir þrír flokkar ekki til góðrar uppskeru.“

Grein Kolbrúnar er til muna lengri. Hér er hægt að lesa hana alla.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: