- Advertisement -

Vanþakklæti – Um 400 vildu sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík

Stjórnmál: Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, var gestur Sona Egils á Samstöðinni í gær:

Guðrún var spurð um flótta borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur og varaborgarfulltrúans Helga Áss Grétarssonar yfir til Miðflokksins.

Bæðu eru þau Kjartan og Marta rótgróið íhald.

Guðrún svaraði því til að munur væri á stöðu Kjartans og Mörtu annars vegar og svo stöðu Helga Áss. Guðrún sagði að bæði Marta og Björn hefðu lengi starfað innan Sjálfstæðisflokksis í Reykjavík. Mest á þeim árum sem flokkurinn hefði ekki haft nægt fylgi og verið dæmdur til að vera í minnihluta.

Nú hefði verið álveðið að hafa aðra nálgun við val á listanum, það er uppstillingu. Hvorki Kjartan né Marta fengu náð fyrir augum uppstillingarnefndarinnar. Guðrún sagði að Kjartani og Mörtu hefði nær að þakka fyrir þann langa tíma sem þau hefðu verið kjörnir fulltrúar flokksins í Reykjavík. Alltaf í minnilhuta.

Guðrún formaður sagði að um fjögur hundruð hafi lýst yfir áhuga á að vera á framboðslistanum. Því hefðu margar félagar í Sjálfstæðisflokknum ekki fengið þann framgang sem óskað var eftir.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: