
Stjórnmál: Vor til vinstri og VG í Hafnarfirði standa saman að framboði til bæjarstjórnar i Hafnarfirði:
„Vinstrið í Hafnarfirði byggir á þeirri sannfæringu að mikilvægt sé að styrkja rödd fólksins í bænum og stuðla þannig að réttlátari, grænni og lýðræðislegri framtíð.
Vinstrið í Hafnarfirði er með kosningaáherslur sem taka mið af þörfum fólksins í bænum og vilja tryggja að íbúar hafi raunveruleg áhrif. Við viljum vernda rétt íbúa til heilnæms umhverfis. Við leggjum áherslu á að réttur fólks sé ávalt virtur við skipulag og rekstur sveitarfélagsins. Við viljum vinna að öruggu samfélagi þar sem gott er að búa á öllum aldri, óháð stöðu, kyni, efnahag eða uppruna.
Þau málefni sem við teljum brýnust eru húsnæðismál, skóla- og menntamál og samgöngu- og skipulagsmál. Við viljum efla fjölbreytileika og aðgengi að menningu í bænum og leggjum áherslu á umhverfismál út frá náttúruvernd en líka til að fegra umhverfi okkar. Kosningaáherslur Vinstrisins í Hafnarfirði er að nálgast öll málefni út frá grundvallarmarkmiðum um efnahagslegt og félagslegt réttlæti.
Þau sem leiða listann eru:
- Ester Bíbí Ásgeirsdóttir, MSc í Stjórnun og stefnumótun. Verkefnastjóri.
- Svenný Kristins, aðstoðarmaður iðjuþjálfa, tónsmiður.
- Davíð Arnar Stefánsson, landfræðingur, fjallaleiðsögumaður.
- Guðrún Lína Thoroddsen kvikmyndagerðarmaður.
- Margrét Pétursdóttir, leiðsögumaður.
- Anna Sigríður Sigurðardóttir, framhaldsskólakennari.