Alþingi: Jón Pétur Zimsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins er að mynda sér sérstöðu. Ræður hans er langt frá því sem venja er til:
„Umbúðastjórnmál og vinnubrögð. Í gærkvöldi ræddum við vegabréfsáritanir. Frumvarpið gekk út á að auka fjölda ferðamanna frá löndum utan Schengen þannig að utanríkisráðuneytið myndi fá á endanum meira í kassann. Með einu handtaki breytti meirihlutinn markmiðum frumvarpsins þannig að það átti að snúa málinu á hvolf og fækka ferðamönnum í stað þess að fjölga þeim, hreinn viðsnúningur. Sérstök vinnubrögð.
Talandi um vinnubrögð og umbúðir, hér er ég með ævintýrabók og við ættum öll að huga að lesskilningi, hvað þá yngstu kynslóðarinnar. Ef ég fletti í bókinni sé ég að hér má finna sígildar sögur eins og Nýju fötin keisarans og Hans klaufa en það má líka finna nútímalegri sögur á borð við Pirruðu skattatröllin, Frú verðbólga og Herra vextir — ávallt aufúsugestir, Þunn í Brussel, saga gjaldþrota drykkjukonu, og Buffhamarinn sem hélt að hann væri sleggja.
En með einu handtaki get ég breytt titli sögunnar eins og gerðist í gær með frumvarpið um vegabréfsáritanir. Ég sé það að hér er ævintýrasaga og nafnið á í raun kannski betur við núna: Raunasaga Viðreisnar og Samfylkingarinnar. Þannig að hér erum við með ævintýrabók sem er vissulega skemmtileg og ég hvet sem flesta til að skoða innihaldið.“