- Advertisement -

Orri fékk tvö færi og skoraði úr báðum

Knattspyrna: Víðir Sigurðsson tók saman og birti á Facebook:

Væri íslenska karlalandsliðið í fótbolta enn með í umspilinu fyrir HM ef Orri Steinn Óskarsson hefði ekki misst af öllum sex leikjunum í undankeppninni í haust?

Þeirri spurningu verður að sjálfsögðu aldrei svarað en Orri þurfti bara tvö færi til að skora tvö mörk á fyrstu 20 mínútunum þegar hann sneri aftur í landsliðið í vináttulandsleiknum gegn HM-gestgjöfum Kanada í Toronto í dag. Leikur liðanna endaði 2-2.

Orri er enn bara 21 árs gamall og yngsti maður landsliðsins þó hann beri fyrirliðabandið. Hann hefur nú skorað 9 mörk í fyrstu 17 landsleikjum sínum og aðeins Ríkharður Jónsson, goðsögnin frá Akranesi, og Kolbeinn Sigþórsson hafa farið betur af stað með íslenska karlalandsliðinu.

Rikki skoraði níu mörk í fyrstu 13 landsleikjum sínum á árunum 1947 til 1956, þar af fjögur í sigurleiknum fræga gegn Svíum, 4-3, og Kolbeinn þurfti aðeins 15 leiki til að skora sín fyrstu níu mörk fyrir landsliðið á árunum 2010 til 2013.

Þessir hafa verið fljótastir að skora níu mörk fyrir A-landslið karla:

  • Ríkharður Jónsson þurfti 13 leiki
  • Kolbeinn Sigþórsson þurfti 15 leiki
  • Orri Steinn Óskarsson þurfti 17 leiki
  • Þórður Þórðarson þurfti 18 leiki
  • Eiður Smári Guðjohnsen þurfti 25 leiki
  • Gylfi Þór Sigurðsson þurfti 27 leiki
  • Tryggvi Guðmundsson þurfti 31 leik
  • Þórður Guðjónsson þurfti 33 leiki
  • Albert Guðmundsson þurfti 36 leiki
  • Alfreð Finnbogason þurfti 38 leiki
  • Pétur Pétursson þurfti 38 leiki
  • Ríkharður Daðason þurfti 39 leiki
  • Teitur Þórðarson þurfti 40 leiki

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: