- Advertisement -

Að nýting sameiginlegra auðlinda þjóðarinnar skili sem mestum verðmætum til landsins alls

Alþingi: Eydís Ásbjörnsdóttir Samfylkingu sagði eftirfarandi í þingræðu í gær:

„Það er mikilvægt að íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum gangi vel, jafnt stórum sem smáum, en um leið verðum við að tryggja að      nýting sameiginlegra auðlinda þjóðarinnar skili sem mestum
verðmætum til landsins alls og styrki þau samfélög sem byggja    afkomu sína á henni.“

„Ég vil þakka háttvirtum þingmanni Sigurjóni Þórðarsyni fyrir að vekja máls á því þarfa umræðuefni sem stjórn fiskveiða er. Ég hef áður komið inn í þessa umræðu í þingsal, bæði um loðnuna og um það hvort tímabært sé að ræða vinnsluskyldu af meiri alvöru. Ástæðan er einföld: Við verðum að tryggja að sem mest verðmæti úr sameiginlegri auðlind þjóðarinnar verði til hér á landi. Nýlega fékk ég svar við fyrirspurn til hæstvirtum atvinnuvegaráðherra um meðalverð á landaðri loðnu til frystingar. Þar kom fram að loðna sem landað er í Færeyjum reynist rúmlega þrisvar sinnum verðmætari en loðna sem landað er á Íslandi. Sá munur kallar á spurningar. Á sama tíma sjáum við sífellt stærri hluta aflans fara úr landi án frekari vinnslu. Þá flytjast verðmætin, störfin og tekjurnar einnig úr landi. Þess vegna tel ég að loðnuumræðan leiði okkur óhjákvæmilega að stærri spurningu: Er núverandi fyrirkomulag að skila þjóðinni þeim verðmætum sem auðlindin getur skapað, eða kannski réttara sagt skapar? Við þurfum að taka alvöruumræðu um vinnsluskyldu á hluta aflans. Ef menn telja að sú leið sé ekki fær þá eigum við að ræða aðrar leiðir, þar á meðal útflutningsgjald á óunnar eða lítt unnar afurðir.“

„Það er mikilvægt að íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum gangi vel, jafnt stórum sem smáum, en um leið verðum við að tryggja að nýting sameiginlegra auðlinda þjóðarinnar skili sem mestum verðmætum til landsins alls og styrki þau samfélög sem byggja afkomu sína á henni.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: