
Stjórnmál: Gunnlaugur Ólafsson skrifaði eftirfarandi:
„Eftir langvarandi valdatíð Sjálfstæðisflokks siðaatliðma öld hefur það viðgengist að innvígðir mega fleyta til sín auð og völdum í krafti opinbers embættis. Það sem meira er að innvígðir líta ekki á þetta sem spillingu.Telja Áslaugu Örnu verðugri en gengur og gerist og eigi skilið að fá allan þann rjóma sem er í boði. 13 milljónir í laun Alþingismanns þó hún hafi ekki verið að sinna starfinu. Já allt mun þetta ga ga eftir með bros á vör.
Heiða Björg fyrrum borgarstjóri er ekki í flokki innvigðra. Þó hún hafi strax sýnt fram á að helmingur af 700 þús á kort borgarstjóra var vegna flugmiða frá Tókýo. Og hún hafi gert grein fyrir hverri krónu og endurgreitt einhver 30 þúsund þar sem nóturnar fundust ekki. Allir sem þekkja til màla og persónu fyrrum borgarstjóra vita að hún er manneskja heilinda og hefði aldrei notað kortið í annað en vinnutengd útgjöld. Þetta var víst spilling.
Það situr eftir í mér að enn eigi eftir að gera grein fyrir því hvernig þetta má gerast að 13 milljónir úr ríkissjóði fari til námsmanns. Áslaug segist bara vera að fylgja reglum. Sýnist einmitt að hún sé að misnota reglur. Tekur sæti á þingi í nokkra daga til að tilkynna að hún sé hætt þingmennsku. Það á að vera öllum ljóst að hún átti að segja af sér þingmennsku þegar hún fór í namið. Ef þerta er löglegt þá er það allavega siðlaust.“