- Advertisement -

Á Ísland að fara úr Nató?

Guðmundur Andri Thorsson.

„Ef ég væri Bandaríkjamaður þá væri það mér ráðgáta hvernig hagmunir mínir og míns samfélags tengdust hagsmunum Sádi-Araba, og hvers vegna ég ætti yfirhöfuð að hafa skoðun á ágreiningi súnníta og síta, sem snýst í grunninn um það hvort ráðgjafi Múhameðs eða tengdasonur hafi átt að taka við af honum sem leiðtogi múslima á 7. öld,“ skrifar Guðmundur Andri Thorsson Samfylkingu á Facebook rétt í þessu.

„Ég myndi ekki skilja hvað ég ætti sökótt við Írani eða hvers vegna ég ætti að hafa áhyggjur af valdabrölti þeirra í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Ég myndi hins vegar þrýsta á orkuskipti til að þessir olíusalar allir hafi minni áhrif á gang heimsmála og líka til að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. En ég er ekki Bandaríkjamaður. Hins vegar fæ ég að súpa seiðið af uppátækjum Bandaríkjaforseta – og núverandi ríkisstjórn okkar Íslendinga hefur verið að treysta böndin við þetta herveldi, jafnvel búa í haginn fyrir endurkomu ameríska hersins. Það finnst mér hættuspil; við eigum að fjarlægja okkur bandarískum hagsmunum eins og við mögulega getum, jafnvel að íhuga úrsögn úr Nató meðan Bandaríkjamenn eru þar svo fyrirferðarmiklir,“ skrifar þingmaðurinn.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: