- Advertisement -

Aldrei verið boðið út

Stjórnsýsla „Rétt er að taka fram að það hefur aldrei verið viðhaft útboð á þessari þjónustu hér á landi,“ segir Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar í grein í Fréttablaðinu í dag, þegar hann færir rök fyrir samningi bæjarins við fyrirtæki fyrrverandi bæjarstjóra, Ásdísar Höllu Bragadóttur, Sinnum.

Gunnar segir ennfremur: „Flest sveitarfélög, og Garðabær þar með talinn, vilja að það sé í höndum íbúanna sjálfra að geta breytt þjónustunni og/eða óskað eftir nýjum aðila til að sinna henni. Það er vandasamara ef verk er boðið út. Við mótun á því hvernig þessari viðkvæmu þjónustu verður háttað til framtíðar mætti, auk þess að skoða útboðsleiðina, hugsa sér að líta til Norðurlandanna. Þar er heimaþjónusta víða „valfrjáls“ en ekki boðin út í almennu útboði. Í stað þess að sveitarfélag semji við eitt eða tvö fyrirtæki um heimaþjónustu velja íbúarnir sér eitt af þeim fyrirtækjum sem sveitarfélagið hefur staðfest að sé viðurkennt á þessu sviði.“

Tímamótasamningur

Gunnar segir samniginn hafa verið tímamótasamning. „Samningur Garðabæjar og Sinnum var tímamótasamningur en með honum fór af stað tilraun um samstarf sveitarfélags og einkaaðila til að sinna þessari tilteknu þjónustu. Samningurinn kveður á um einingaverð, þ.e. að samningsupphæð fari eftir magni þjónustunnar og er miðað við að lágmarki 50 heimili. Samningurinn felur því ekki í sér skuldbindingu um ákveðna samningsfjárhæð heldur er það í hendi bæjarins að stjórna og skipuleggja starfsemina og með því að ákvarða samningsfjárhæðina. Það er því rangt að halda því fram að verkefnið hafi verið útboðsskylt þegar samningurinn var gerður.

Í upphafi var samningurinn gerður til eins árs og gilti til 15. janúar 2010 en frá þeim tíma hefur hann verið endurnýjaður til eins árs í senn vegna góðrar reynslu og ánægju þeirra sem fá þjónustuna.

Sveitarfélögum ber lögum samkvæmt skylda til að bjóða þeim íbúum sem á þurfa að halda upp á félagslega heimaþjónustu. Það er mat bæjaryfirvalda að nauðsynlegt hafi verið að afla reynslu af þróun samninganna við ISS og Sinnum áður en teknar yrðu ákvarðanir um framtíðarskipulag og fyrirkomulag á jafn mikilvægri starfsemi og félagsleg heimaþjónusta er. Sú reynsla liggur nú fyrir og mun nýtast nýrri bæjarstjórn við mótun á fyrirkomulagi þjónustunnar til framtíðar.

Aðrar kvatir að baki?

Þótt blaðamaður Fréttablaðsins, Sveinn Arnarsson, sem var reyndar kosningastjóri Samfylkingarinnar á Akureyri í fyrra, hafi haft það að sínu markmiði, nú korteri fyrir kosningar, að gera samning Garðabæjar og Sinnum tortryggilegan, er rétt að geta þess að í dag kaupa flest sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu sambærilega þjónustu af Sinnum, sem sýnir að tímamótaverkefnið sem Garðabær hratt af stað fyrir nokkrum árum hefur gefið góða raun. Í öllum tilvikum er verklagið það sama, þ.e. óskað er eftir tilboðum í tiltekna þjónustu og samið um fast einingaverð. Umfangið ræðst síðan af eftirspurn og endanleg reikningsupphæð sömuleiðis. Það skýtur því skökku við að reynt sé að gera viðskipti Garðabæjar við fyrirtækið tortryggileg og kveikir þá hugsun að þar liggi aðrar hvatir að baki en að upplýsa lesendur.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: