- Advertisement -

Bandaríkin eru ekki lengur talin til frjálslyndra lýðræðisríkja – Ísland nr. 25

Við erum í 25.sæti á meðan frændur okkar raða sér í efstu sætin, Danmörk, Svíþjóð, Noregur og Finnland.

Veröldin: Hrafn Magnússon skrifaði:

V-Dem stofnunin við háskólann í Gautaborg gefur árlega út skýrslu um stöðu lýðræðis í heiminum. Í skýrslunni frá 2026 segir að í fyrsta sinn í meira en hálfa öld teljist Bandaríkin ekki lengur til frjálslyndra lýðræðisríkja.

Mat stofnunarinnar er að Danir búi við mest lýðræði og á eftir fylgi Svíþjóð, Noregur og Sviss. Finnland er í áttunda sæti en Ísland aðeins í 25. sæti.

V-Dem lýsir einnig áhyggjum af tjáningarfrelsi sem hafi minnkað í 44 ríkjum heimsins.

Hér er vitnað í frétt frá RUV þar sem Bogi Ágústsson fór yfir þessar markverðu niðurstöður.

Það sem mér finnst áhugavert og vekur ugg er staða Íslands miðað við hin Norðurlöndin. Við erum í 25.sæti á meðan frændur okkar raða sér í efstu sætin, Danmörk, Svíþjóð, Noregur og Finnland.

Nauðsynlegt er að fá frekari greiningu á stöðu Íslands. Mér dettur í hug að meðal ástæðna sé að á Íslandi komi út aðeins eitt dagblað sem haldið er uppi af stórútgerðinni. Morgunblaðið er þó ekki eins mikill áhrifavaldur og útbreiðslan ekki jafn mikil og fyrir nokkrum áratugum.

Það er engri þjóð hollt að aðeins eitt dagblað sé gefið út. Morgunblaðið hefur, þrátt fyrir hægri slagsíðu, á að skipa mörgum góðum blaðamönnum. Ég tel nauðsynlegt að efla enn frekar fjölmiðlafrelsi en nú er gert, en til þess þarf vilja og getu stjórnvalda og almennings.

Staða lýðræðis hér á landi er í húfi og við þurfum með markvissum hætti að ná sama árangri í lýðræðiásátt og frændur okkar á Norðurlöndum. Hugum að þessu.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: