- Advertisement -

Bara ein leið, að ganga í ESB

GS SIJAlþingi Guðmundur Steingrímsson, Bjartri framtíð, talaði um landbúnað og verðandi búvörusamning á Alþingi. Tollar og útflutningur komu til umræðu.

„Við búum við þann veruleika að í Evrópulöndunum, okkar helstu viðskiptalöndum, eru náttúrlega mjög háir tollar á landbúnaðarvörur. Ég heyri það úr röðum bænda að þeir eru orðnir áhugasamari um að njóta tollfrelsis í viðskiptum við Evrópu. Þá er bara ein leið. Það er að ganga í Evrópusambandið,“ sagði Guðmundur.

„Það er það sem mér finnst mjög áhugavert í þessum búvörusamningum. Mér finnst þetta vera leið landbúnaðarins til þess að átta sig á því að næsta skref er auðvitað að ganga í Evrópusambandið og njóta tollfrelsis í viðskiptum með búvörur frá Íslandi. Mun því ekki landbúnaðurinn á Íslandi krefjast þess á næstu árum að við göngum í Evrópusambandið? Er það ekki kalt mat ráðherrans?“

Alrangt hjá þingmanninum

Þú gætir haft áhuga á þessum

Sigurður Ingi Jóhannsson landbúnaðarráðherra var ekki sammála Guðmundi.

„Það er hins vegar alrangt hjá þingmanninum að það sé bara til ein leið. Flest ríki heims fara þá leið að gera fríverslunarsamninga. Við erum held ég með eina 35. Við gerðum tollasamning við Evrópusambandið sem á eftir að koma inn í þingið samhliða búvörusamningum, en í honum felst gagnkvæmni þannig að íslenskur landbúnaður getur nýtt sér tækifæri þar. Í þeim samningum var til að mynda Evrópusambandinu boðið fullkomið tollfrelsi á inn- og útflutningi á lambakjöti en Evrópusambandið hafnaði því sem sýnir náttúrlega svartara á hvítu en nokkuð annað hvers lags tollabandalag Evrópusambandið í raun og veru er og heldur öllum öðrum frá. Tollmúrar þar eru á margan hátt miklu hærri en til að mynda á Íslandi þó að maður gæti haldið annað af umræðunni hér innan lands,“ sagði ráðherra.

„Samningarnir eru einmitt gerðir til þess að tryggja fjölbreyttari landbúnað, öflugari byggð og það sem við vorum að ræða hér áðan, byggðafestu. Á sama tíma á að skila neytendum sífellt lægra vöruverði og að tryggja þeim örugg og góð matvæli sem ég held að sé ekki bara krafa nútímans heldur verði það vaxandi krafa inn í framtíðina.“

Stórfrétt hjá ráðherra

Guðmundur sagðist hafa tekið eftir stórfrétt í máli ráðherrans. „Íslendingar buðu sem sagt í viðræðum við Evrópusambandið tollfrjáls viðskipti með lambakjöt og fengu ekki vegna þess að Evrópusambandið vill setja á tolla. Við erum ekki í Evrópusambandinu. Þetta staðfestir í mínum huga það sem ég hef heyrt frá mörgum bændum að við viljum flytja út meira og það er mjög lítil samkeppni við íslenskt lambakjöt í raun og veru í Evrópu, í okkar helstu viðskiptalöndum. En við erum ekki í Evrópusambandinu og fáum þess vegna ekki fullan tollfrjálsan aðgang að þeim mörkuðum,“ sagði Guðmundur.

„En það sem er fréttin í þessu er að íslensk kindakjötsframleiðsla er framleidd á heimsmarkaðsverði. Það er fréttin. Það hefur tekist í gegnum árin að tryggja það, með stuðningi ríkisins,  að við erum orðin samkeppnishæf um verð í framleiðslu á þessari frábæru vöru og getum boðið hana á öðrum mörkuðum á vonandi enn hærra verði en við höfum séð til þessa,“ sagði ráðherrann.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: