- Advertisement -

Bílastæðaskortur og fækkun bílastæða er forgangsmál hjá borgarstjórnarmeirihlutanum

Ragnhildur Alda M. Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins skrifaði:

Þegar þeir sem ráða leggja meiri áherslu á að stýra hegðun fólks en að þjóna því, endar það alltaf með skorti og verðhækkunum. Enda eru það verkfærin —Að hækka verð, skatta og gjöld og búa til skort. Á meðan mætir þjónustan afgangi og reikningurinn lendir á íbúum.

Opinber gjöld eru nú 20-25% af verði hverrar íbúðar. Samt ætlar borgin núna að hækka gatnagerðargjöld um 100% og rukka 1,2 milljónir í refsigjald fyrir hvert bílastæði í bílakjallara. Að skipuleggja bílastæðaskort og fækka bílastæðum er forgangsmál hjá þessum borgarstjórnarmeirihluta þó íbúar vilji nánast allir eiga kost á því að fá bílastæði við heimilið sitt skv. könnunum. Afleiðingarnar eru íbúðir sem fólk hefur hvorki efni á né not fyrir. Skortinum er viðhaldið og verð heldur áfram að hækka.

Hér hefur raunhækkun fasteignaverðs verið ein sú mesta í Evrópu. Verðþróun á fasteignamarkaði hefur frá aldamótum vegið rúman þriðjung af allri verðbólgu og verið megindrikraftur hennar á árunum 2013 til 2019. Þessi húsnæðisstefna hefur þannig kostað fyrstu kaupendur tugi milljóna í hækkun fasteignaverðs og verðbólgu.

Þú gætir haft áhuga á þessum

PS. Því er öfugt farið við það sem fyrrverandi formaður Samtaka um bíllausan lífstíl hélt fram eru bíllausir væru að niðurgreiða bílastæði fyrir ökumenn.

Kostnaðurinn við bílastæðagerð hefur nánast alltaf verið felldur inn í uppbyggingarkostnað. Nú með gatnagerðargjöldum sem dekka gerð almennra bílastæða. Fasteignagjöldin fjármagna síðan m.a. viðhald gatna og bílastæða. Væntanlega fær fólk sem lifir bíllausum lífstíl til sín heimsóknir frá akandi fólki, heimsendingar, eða jafnvel bara far með ökumanni. Fyrir vikið eru það ökumennirnir sem hafa margsinnis niðurgreitt bæði gerð og notkun bílastæðanna fyrir fólkið sem lifir bíllausum lífstíl.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: