- Advertisement -

Fólk hræðist það sem það þekkir ekki

Stjórnmál: Regína Ásvaldsdóttir, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, skrifaði:

Regína Ásvaldsdóttir.

„Ég hef djúpa samúð með þeirri stöðu sem Samhjálp er í vegna húsnæðisins við Grensásveg þar sem þau hafa verið að undirbúa opnun kaffistofu en að mati framkvæmdastjóra samtakanna verða þau fyrir miklu tjóni vegna ákvörðunar úrskurðarnefndar um umhverfis og auðlindarmál að fella byggingarleyfi fyrir kaffistofuna úr gildi.

Það sem veldur mér miklum áhyggjum er hvernig við sem samfélag höfum sífellt minna þol fyrir þeim sem eru öðruvísi.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Smáhýsi fyrir heimilislaust fólk.

Á mínum rúmu fimm árum sem sviðsstjóri velferðarsviðs borgarinnar fengum við mörg svona verkefni sem við þurftum að leysa. Það voru meðal annars staðsetning 20 smáhúsa fyrir heimilislaust fólk með mikinn vanda, nýtt gistiskýli, heimili fyrir konur með geðraskanir og vímuefnavanda, öryggisvistun og svo bygging fjölmargra búsetukjarna. Í nær öllum tilvikum var fyrirhugaðri starfsemi mótmælt en að sama skapi hefur gengið bara ágætlega með öll þessi úrræði, eftir að þau voru tekin í notkun.

Fólk hræðist það sem það þekkir ekki og það er því miður ekki neinn „annar staður“ sem hentar því þar býr fólk líka.

Það eru gríðarlega mikil samfélagsleg verðmæti fólgin í því að hafa öruggt skjól fyrir fólk sem á í geðheilbrigðis-, eða vímuefnavanda. Í þessum úrræðum starfar fólk sem hefur yfirleitt ástríðu fyrir verkefnunum, gefur hlýju og næringu og eins mikið öryggi og hægt er miðað við aðstæður.

Ég vona svo innilega að Samhjálp fái allan þann stuðning sem hægt er að veita frá Reykjavíkurborg og öðrum aðilum við að finna varanlega staðsetningu fyrir þessa mikilvægu starfsemi.

Viðtal við Guðrúnu framkvæmdastjóra Samhjálpar má lesa hér.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: