RVK: Nýir herrar í ráðhúsinu hafa látið til sín taka og ætla meðal annars að loka mannréttindaskrifstorunni. Ekki eru allir sáttir. Dagur B. Eggertsson tók saman og skrifaði:
Topp tíu verkefni Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar!
- 1. Að eyða launamun kynjanna hjá Reykjavíkurborg.
- 2. Breytt og betri nálgun gegn heimilisofbeldi.
- 3. Stofnun Bjarkarhlíðar, miðstöð fyrir fórnarlömb ofbeldis.
- 4. Ofbeldislausir skemmtistaðir og barátta gegn nektarstöðum og mansali í Reykjavík.
- 5. Hinsegin fræðsla í skólum og þátttaka borgarinnar í Hinsegin dögum.
- 6. Regnbogavottun vinnustaða.
- 7. Stuðningur og samstarf við Samtökin 78 og önnur mannréttindasamtök, meðal annars samningar um Hinseginn félagsmiðstöð fyrir unglinga.
- 8. Römpum upp Reykjavík (og svo Ísland), þáttur í aðkomu borgarinnar að brautryðjandi verkefni Haraldar Þorleifssonar .
- 9. Umfjöllun um fjölmenningu, utanumhald um fjölmenningarráð, fræðsla og stuðningur við inngildingu.
- 10. Málefni eldri borgara og stuðningur við öldungaráð.
Mig langar að segja í mjög stuttu máli frá tíu mikilvægum og sumum algjörum tímamóta verkefnum sem Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar og jafnréttisfulltrúi borgarinnar þar áður hefur komið að eða haldið alfarið utan um á vettvangi borgarinnar undanfarin ár.
Við lesturinn verður flestum ljóst að þessi verkefni hafa og fjölmörg önnur hafa gjörbreytt og bætt lífsgæði í Reykjavík…
Til að gera þetta aðgengilegt valdi ég að setja þetta fram sem topp tíu lista. Og skrifa mest þrjár setningar um hvert. Allt verðskuldaði þetta miklu lengra mál og umfjöllun en ég læt tengla fylgja fyrir þau sem vilja lesa meira.
Við lesturinn verður flestum ljóst að þessi verkefni hafa og fjölmörg önnur hafa gjörbreytt og bætt lífsgæði í Reykjavík, og haft víðtæk áhrif langt út fyrir borgarmörkin – landið allt. Þau hafa stuðlað að umburðarlyndari, frjálslyndari borg sem hafnar ofbeldi og fordómum í öllum sínum myndum og vinnur að þeim skipulega og markvisst á fjölmörgum sviðum.
Um leið og ég vil þakka öllum sem hafa komið að þessum verkefnum í gegnum árin (Anna Kristinsdóttir og þitt frábæra teymi) – og oft hefur mannréttindaskrifstofa ekki verið þar ein í för – vil ég lýsa þeirri von að nýr meirihluti í Reykjavík hafi dómgreind og visku til að átta sig á mikilvægi þessar verkefna og áherslna, þannig að þeim verði tryggður vís og eðlilegur samastaður í stjórnkerfi og starfsemi borgarinnar en kasta ekki þessum ótrúlega árangri við að skapa betri borg fyrir róða vegna pólitísks undanhalds gagnvart pópúlisma, hugsunarleysi eða annarri skammsýni.
Topp tíu í örfáum setningum:
- 1. Kynbundinn launamunur. Þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir þáverandi borgarstjóri lét greina kynbundinn launamun hjá borginni um 1995 hafði slík greining aldrei áður verið gerð á Íslandi. Hann mældist yfir 20% og það tók tíma að leitrétta hann. Það tókst borginni – og það betur en nokkrum öðrum á Íslandi, með margþættum, og stundum erfiðum aðgerðum en líka hlutlausu starfmati í samvinnu við stéttarfélög. Þessi verkefni hafa vakið heimsathygli. https://reykjavik.is/…/enginn-maelanlegur-kynbundinn…
- 2. Saman gegn ofbeldi var hluti af því draga heimilisofbeldi fram í dagsljósið og gjörbreyta vinnubrögðum lögreglu, borgar og barnaverndar. Teymi farfólks fer inn á heimili við útkall á vegum lögreglu, klárar málin hraðar og fjarlægir ofbeldismann en ekki fórnarlömb. Verklag sem hefur vakið athygli víða um heim og skilar ótvíræðum árangri. https://reykjavik.is/saman-gegn-ofbeldi
- 3. Bjarkarhlíð varð til meðal annars að frumkvæði Reykjavíkurborgar og veitir fórnarlömbum hvers konar ofbeldis, og mansals, skjól og stuðning. https://bjarkarhlid.is/
- 4. Ofbeldislausir skemmtistaðir er annað samvinnuverkefni með lögreglu, dyravörðum og rekstaraðilum skemmtistaða sem miðar af því að útrýma ofbeldi í skemmtalífinu og á skemmtistöðum. Þetta fylgdi eftir baráttu borgarinnar til að loka nektarstöðum sem settu ljótan svip á borgina – og tengdist baráttu borgarinnar gegn mansali í öllum myndum. https://reykjavik.is/oruggir-skemmtistadir
- 5. Hinsegin fræsla í skólum og þátttaka borgarinnar í Hinsegindögum er hluti af því að skapa umburðarlynda og frjálslynda borg sem vinnur gegn fordómum. Ótrúlega mikilvægt starf sem mætir börnum og fólki þar sem það er – og eins og það er. https://reykjavik.is/hinsegin-born-og-skolar
- 6. Regnbogavottun vinnustaða er verkefni til að koma til móts við starfsfólk og starfstaði sem vilja fræðslu og vera í stakk búin til að taka á móti og veita þjónustu í fjölbreyttri borg. https://reykjavik.is/regnbogavottun-reykjavikur
- 7. Lykiláhersla í mannréttindastarfi borgarinnar hefur alltaf verið það að vinna með grasrótinni og frjálsum félagasamtökum. Samtökin 78 eru gott dæmi um það, Rauða krossinn þegar kemur að heimilslausum og fíklum og þannig mætti áfram telja. Mannréttindaskrifstofan hefur annast mikil samskipti, samninga og styrki vegna þess sem oft er líflína fyrir mikilvæga starfsemi og samtök. https://samtokin78.is/
- 8. Málefni fatlaðs fólks og aðgengismál borgarinnar hafa verið á borðum mannréttindaskrifstofu sem meðal annars kom að Römpum upp Reykjavík verkefninu sem Haraldur Þorleifsson hafði frumkvæði að og varð síðar að Römpum upp Ísland. Aðgengismál í víðum skilningi hafa verið eitt af áherslumálum borgarinnar og mannréttindaskrifstofu. https://www.stjornarradid.is/…/Rompum-upp-Islands-fram…/
- 9. Fjölmenning og inngilding eru sívaxandi og mjög mikilvæg verkefni hjá borg í örum vexti sem verið hafa á könnu mannréttindaskrifstofu. https://reykjavik.is/fjolmenning
- 10. Málefni eldri borgara og öldungaráð. Öldungaráð borgarinnar er lýðræðislegur vettvangur fulltrúa eldra fólks og fulltrúa borgarstjórnar til að vinna að aldursvænni borg sem er gríðarlega umfangsmikil og mikilvæg stefnumótun sem snertir mörg svið borgarinnar. Mannréttindaskrifstofa hefur stutt við verkefni öldugaráðs. https://reykjavik.is/stjornsysla-stjornkerfi…/oldungarad
Læt fylgja mynd af þróun á kynbundnum launamun – já, þetta tók tíma. En tókst!
