Umræðan/Facebook: Atli Þór Fanndal skrifaði:
„Þetta er dogmatík. Samfélög eiga að tryggja húsnæði á viðráðanlegu verði. Það er nákvæmlega ekkert að því að borgin byggi. Sérstaklega eftir rúmlega tveggja áratuga tilraun verktakaræðis og rentusóknar. Reyndar eru það einmitt borgir sem byggja sem ekki eru að drepast úr húsnæðisvanda. Viðreisn eru stundum svo agalegir pjúritanar að ég held að þau séu í alvörunni fullkomlega sátt við að auka félagsleg vandamál, ójöfnuð og versnandi andlega heilsu ef þau geta allavega klappað sér í partýum fyrir að vera góðir og hugmyndafræðilega hreinir kapítalistar. Þessi skrif eru bara bjánaleg og gefa ekki til kynna að höfundur skilji til hvers við rekum hið opinbera og kjósum fólk til að fara með stjórn þess. Það er ástæða fyrir því að hver einstaklingur fer með atkvæði en ekki hver króna.“
