- Advertisement -

Bjarni er hættulegur ráðherra

Jóhann Páll Jóhannsson Samfylkingu skrifaði:

Þegar fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins segir að það sé ekki í verkahring ríkisfjármálanna að vinna gegn verðbólgu stimplar hann sig ekki bara út úr vitrænni umræðu um efnahagsmál heldur grefur undan trúverðugleika hagstjórnarinnar þegar síst skyldi, einmitt þegar öllu skiptir að hafa hemil á verðbólguvæntingum og senda skýr skilaboð um að allir armar hagstjórnar vinni í takt.

Fjármálaráðherra sem talar með þessum hætti, þ.e. hunsar bæði lögbundnar skyldur ríkisstjórnar samkvæmt lögum um opinber fjármál og hafnar viðteknum viðhorfum um sveiflujöfnunarhlutverk ríkisfjármála, er beinlínis hættulegur kjörum og kaupmætti fólksins í landinu. Ekki furða að margir sem áður treystu Sjálfstæðisflokknum fyrir ábyrgri efnahagsstjórn séu farnir að horfa annað.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: