- Advertisement -

Borgum margfalt á við Færeyinga

Húsnæðisvextir þar eru 1,7 prósent en óverðtryggðir vextir hér eru 7,1 prósent.

Vilhjálmur Birgisson skrifar: „Í gær birti ég samanburð á breytilegum óverðtryggðum húsnæðisvöxtum á milli nokkra landa sem við erum oft að bera okkur saman við. Í þeim samanburði kom skýrt fram að íslensk heimili eru að greiða allt að 110.000 kr. meira í vaxtakostnað í hverjum mánuði.

Ólafur Ísleifsson doktor í hagfræði og alþingismaður benti á í umræðum um þetta háa vaxtastig hér á landi að í Færeyjum sé verið núna að bjóða heimilum þar upp á fasta húsnæðisvexti sem hljóða upp á einungis 1,7% til 20 ára.

Ég skoðaði því hvað óverðtryggðir fastir vextir viðskiptabankanna hér á Íslandi hljóða upp á en þeir eru 7,1% miðað við að lánshlutfall sé 80%. Rétt að geta þess að þessir óverðtryggðu vextir bankanna hér á landi eru bara bundnir að hámarki til 5 ára.

Þetta þýðir að íslensk heimili þurfa að greiða 112.500 kr. meira í húsnæðisvexti en heimili í Færeyjum! Að hugsa sér að íslensk heimili þurfi að greiða í hverjum mánuði 112.500 kr. meira en heimili í Færeyjum er gjörsamlega galið og sýnir það ofbeldi sem íslenskum heimilum er boðið upp á ár eftir ár.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: