- Advertisement -

Dauðadóm sinn kvað hann upp og glotti

Jón Gunnarsson fer ekki fögrum orðum um ríkisstjórnina.
Myndvinnsla. Kjarninn

„Dauðadóm sinn kvað hann upp og glotti, þorpsbúana hafði að háð og spotti.“ Þetta söng Bubbi og Tolli bróðir hans samdi. En hvers vegna er þetta skrifað hér?

Jú, eftir lestur greinar Jóns Gunnarssonar í Mogganum í dag komst ég ekki hjá því að söngla þessa fínu setningu og ekki við verra lag. Hvað á Kyrrlátt kvöld við fjörðinn og Jón Gunnarsson sameiginlegt. Vart er hægt að finna meiri andstæður.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Nú er tími til að láta hend­ur standa fram úr erm­um.

Jón skrifar: „Þessi rík­is­stjórn hef­ur nú setið við völd í á þriðja ár og skila­boðin til okk­ar eru skýr: Nú er kom­inn tími til að hefjast handa.“ Þó fyrr hefði verið, ágæti þingmaður Jón Gunnarsson. Þarna má segja að Jón hafi kveðið upp dauðadóm yfir ríkisstjórninni.

En hvað á þingmaðurinn við?

„Þessi verk­efni eru um allt land og eiga það sam­merkt að mynda grunn að efl­ingu sam­fé­lags­ins. Það er ekki síður mik­il­vægt, við þær aðstæður sem nú hafa skap­ast og um hæg­ist í hag­kerf­inu, að hið op­in­bera svari því með háu fram­kvæmda­stigi og það strax. Slík­ar ráðstaf­ir yrðu til að auka á bjart­sýni manna og gefa at­vinnu­líf­inu það súr­efni sem það þarf á þess­um tíma­mót­um. Nú er tími til að láta hend­ur standa fram úr erm­um, tími aðgerða er runn­inn upp og þess verður að sjá stað strax á þessu ári og þeim næstu.“

Obbobobb. Ég segi ekki meir. Jón Gunnarsson kveður upp dauðadóm og er nærri aftöku eigin ríkisstjórnar. Öruggt má telja að Jón, ritari Fálkans, eigi sér mörg skoðanasystkin um vanhæfi ríkisstjórnarinnar.

Það er gott hjá Jóni að standa upp og draga tjaldið frá. Meira svona, kunna margir að segja.

-sme


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: