- Advertisement -

„Dómsmálaráðherra bullar“

Björn Leví Gunnarsson alþingismaður skrifar:

Þessi dómsmálaráðherra bullar bara: „Áslaug segir að ýmislegt hafi vantað upp á það. Bæði að horfa til lyfja sem og skilgreiningu á neysluskömmtum. Það þarf að skoða betur hvernig á að gera upptæka neysluskammta frá börnum og fleira.“

Úr nefndaráliti vegna frumvarpsins:
– Lyf: „Minni hlutinn tekur undir þau sjónarmið að refsileysi vörslu neysluskammta eigi að taka til allra efna sem vímuefnaneytendur kunna að neyta, hvort sem um ræðir lyfseðilsskyld lyf skv. 3. gr. eða ávana- og fíkniefni skv. 2. gr. Leggur minni hlutinn því til breytingar þess efnis að varsla efna verði gerð refsilaus á sama hátt.“

Þú gætir haft áhuga á þessum
Björn Leví Gunnarsson:
Svona málflutningur ráðherra er beinlínis óheiðarlegur og villandi.

– Neysluskammtar: „Gildandi lög hafa að geyma reglugerðarheimild í 2. mgr. 2. gr. sem og í 1. mgr. 3. gr. Á grundvelli þeirrar reglugerðarheimildar hefur verið sett reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni auk þess sem nýjar reglugerðir hafa reglulega verið settar til að uppfæra listann um hvaða ávana- og fíkniefni falli undir listann. Minni hlutinn leggur til að bætt verði við frumvarpið nýrri reglugerðarheimild þar sem ráðherra verður gert skylt til að setja reglugerð þar sem kveðið verði nákvæmlega um hvaða magn efna skuli teljast til eigin neyslu.“

– Börn: „Minni hlutinn telur því ástæðu til að bæta við lagaheimild fyrir lögreglu til þess að haldleggja fíkniefni í fórum barns þegar slíkt inngrip samræmist hagsmunum barnsins.“

Það er eins og ráðherra hafi ekki lesið hverju vinna þingsins skilaði í breytingatillögum á frumvarpið og gagnrýnir bara texta frumvarpsins eins og það var lagt fram. Það vantaði ekkert. Það var búið að bregðast við öllum ábendingum. Svona málflutningur ráðherra er beinlínis óheiðarlegur og villandi, því hún á að vita betur en þetta … en segir það samt. Það eru nákvæmlega svona stjórnmál sem halda öllu í heljargreipum (bókstaflega mtt þessa frumvarps). Svona frjálsleg meðhöndlun á staðreyndum málsins er sandkassaleikur sem kostar mannslíf, vegna þess að vandamálið er enn til staðar. Vandamál sem væri hægt að byrja að leysa ef frumvarp Pírata hefði verið samþykkt.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: