- Advertisement -

Ég mun styðja Ingibjörgu til formanns

„Meðal annars vegna þessa mun ég styðja Ingibjörgu Isaksen með mínu atkvæði til formanns á sunnudaginn. Og ég hvet alla sanna Framsóknarmenn til að gera slíkt hið sama.“

Sigurður Jóhannsson, sonur Sigurðar Inga núverandi formanns Framsóknarflokksins.

Umræðan/Formannskjör Framsóknar: Jóhann Sigurðsson, sonur Sigurðar Inga Jóhannssonar, núverandi formanns framsóknar, skrifaði:

„Á þessu ári eru 20 ár síðan ég skráði mig í Framsókn. Fyrir 10 árum varð faðir minn formaður flokksins, og þar af leiðandi hef ég viljandi ákveðið að tjá mig ekki eins mikið og ég hefði kosið, þar sem ég vil ekki að fólk sé að draga ályktanir um að þetta sé faðir minn að tala í gegnum mig. Nú er hann að hætta sem formaður Framsóknar um helgina og grasrót flokksins hefur fengið það verkefni að velja sér nýjan leiðtoga. Þeir sem þekkja mig vita að ég er alls ekki skoðanalaus. Þeir sem þekkja mig vel vita líka að faðir minn hefði oft kosið að ég myndi segja færri orð en ég geri. En formannsslagurinn sem nú er í gangi hefur vakið upp tjáningarþörf og hér birtist einn angi hennar:

Leikur að tölum er skemmtilegur. Fólk sem er í framboði í pólitík slengir oft fram tölum til þess að styðja við sinn málstað. Varaformaður Framsóknar hefur nýlega sagt að tæp 42% atkvæða Framsóknar hafi komið á höfuðborgarsvæðinu í síðastliðnum kosningum. Hún lýgur vissulega engu þar, en hvað segja tölurnar fleira?

Framsókn beið afhroð í kosningunum á landsvísu árið 2024. Þeim var hafnað eftir að hafa verið þátttakandi í einni óvinsælustu ríkisstjórn seinni tíma. Hlutirnir fóru þó ekki jafn illa alls staðar. Reykjavík Suður, Reykjavík Norður og Suðvestur kjördæmi voru samtals í heild með 139.724 atkvæði eða um 75.2% af heildaratkvæðum á landsvísu. Af þeim tæplega 140 þúsund atkvæðum, fékk Framsókn 6922 atkvæði. Kjördæmi varaformanns Framsóknar náði sér í 1.638 atkvæði, eða um 4.4%. Hún nefndi í viðtalinu sérstaklega kjördæmi formanns Framsóknar til samanburðar, Suðurkjördæmi. Þar vannst ákveðinn varnarsigur við erfiðar aðstæður. Formaðurinn datt inn á lokametrunum sem uppbótarþingmaður, en hvað komu mörg atkvæði í Suðurkjördæmi til Framsóknar?

Framsókn fékk 3.806 atkvæði eða um 12% fylgi í kjördæminu. Ekki einungist fengust fleiri atkvæði heldur en í Reykjavíkurkjördæmunum til samans, heldur fengust fleiri atkvæði en í öllu Suðvestur kjördæmi, sem hefur tvöfalt fleiri atkvæði til umráða. Þeim var hafnað af kjósendum og sennilega eru margar ástæður fyrir því. Ein af þeim tel ég líklega að þau hafi ekki sinnt skyldu sinni að rækta umhverfi sitt nægilega vel. Þau kynntu sig ekki í kjördæminu og sannfærðu ekki sína mikilvægustu kjósendur, hvers vegna þau ættu að vera kosin á þing. Það hefði mátt gera síðustu 10 árin, þegar menn höfðu aðstoðarmenn á launum, sinntu skyldum varaformanns eða ritara eða oddvita síns kjördæmis.

Að halda því fram að nú skuli sko taka til hendinni, að rífa upp grasrót flokksins. Hefja nýjan Framsóknaráratug þar sem Framsókn verður í fararbroddi, eftir að hafa mistekist svona hrapallega síðastliðin ár í sínu nærumhverfi, er að mínu mati frekar ótrúverðugt. Ég myndi sjálfur frekar treysta frambjóðenda sem hefur þurft að fara í gegnum prófkjör í sínu kjördæmi. Berjast fyrir sæti sínu. Byggja upp grasrót og skila tveimur þingmönnum með 14% fylgi, 3445 atkvæðum, eða einnig tvisvar sinnum fleiri atkvæði heldur en Reykjavíkurkjördæmin bæði til samans, þrátt fyrir að vera með næstum þrisvar sinnum færri atkvæði til að sækja (sko leikur að tölum er nefnilega skemmtilegur).

Meðal annars vegna þessa mun ég styðja Ingibjörgu Isaksen með mínu atkvæði til formanns á sunnudaginn. Og ég hvet alla sanna Framsóknarmenn til að gera slíkt hið sama. Til þess að mögulega gætum við aftur séð annan Framsóknaráratug.“

Fyrirsögnin er Miðjunnar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: