- Advertisement -

Fjöldatakmarkanir sjúklinga

Alþingi „Það er ekki gott þegar hæstv. ráðherra þrætir eins og sprúttsali sem staðinn er að verki. Það er sjúklingakvóti við lýði  og þær fjöldatakmarkanir sem beitt er við lyfjaniðurgreiðslu velta á fyrirmælum sem koma frá ráðherranum sjálfum,“ sagði Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir á Alþingi í dag, við mikil viðbrögð þingmanna.

Hér er hægt að hlusta á þessa annars stuttu ræðu.

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra sagði Ólínu ekki hafa rök fyrir máli sínu. „Meginreglan er sú að okkar veikasta fólk er sett fremst við meðferð þeirra sjúkdóma sem lyfjunum er ætlað að vinna á. Ég veit ekki annað en það samstarf milli lyfjagreiðslunefndar, lyfjanefndar sjúkrahúsanna hafi gengið ágætlega og snurðulaust fram til þessa.“

Ólína nefndi fleira. „Við lesum það í blöðunum í dag að það bíða 150 manns eftir hjartaaðgerð. Landspítalinn hefur leyfi fyrir 60 hjartaaðgerðum, það bíða 150 manns. Hvað er það annað en sjúklingakvóti? Það er nákvæmlega það sama sem viðhaft er við lyfjaniðurgreiðslu og ég er með bréf sem felur í sér fyrirmæli ráðherrans, ég get lesið það hér upp undir liðnum fundarstjórn forseta ef þess er óskað. Það er auðvitað óásættanlegt í siðuðu samfélagi að neita sjúklingi um bestu lyfjameðferð og beita fjöldatakmörkunum því að við ræðum hér um lífsbjargandi þjónustu, um lyf sem hindra blindu fólks og geta hjálpað því í baráttu við krabbamein. Það er óásættanlegt vegna þess að við eigum að vera ein þjóð í einu landi.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Það liggur alveg kýrskýrt fyrir í öllu laga- og regluverkinu, sem ég vænti að hv. þingmaður hafi kynnt sér, að íhlutun ráðherra er sem betur fer engin í þessi mál,“ sagði ráðherra.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: