- Advertisement -

Glæpasagnasmiðja í Borgarbókasafni

Írski rithöfundurinn William Ryan heldur glæpasagnasmiðju í aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15, kl. 17-19.30 föstudaginn 21.nóvember. Ritsmiðjan er hluti af alþjóðlegu glæpasagnahátíðinni Iceland Noir sem haldin var í fyrsta skipti í fyrra.

Á vef Borgarbókasafnsins kemur fram að Ryan hafi haldið samskonar smiðju í fyrra sem hafi tókst sérdeilis vel. Ryan hefur sent frá sér þrjár glæpasögur, sem allar gerast í Sovétríkjunum á fjórða áratugnum. Hann nýtir sér sagnfræðimenntun sína til að teikna sögusviðið upp á áhrifamikinn hátt og teflir fram heiðvirðum rannsóknarlögreglumanni sem stendur að nokkru leyti á skjön við kerfið – hið vaxandi veldi kommúnismans. Sjá heimasíðu Ryans, www.william-ryan.com.

Þátttökugjald á námskeiðinu er 3000 kr. og hámarksfjöldi er 15 manns. Enn eru örfá sæti laus og er áhugasömum bent á að hafa sambandi við Úlfhildi Dagsdóttur, ulfhildur.dagsdottir@reykjavik.is.

Sjá á vef Borgarbókasafns

Þú gætir haft áhuga á þessum

Vefur Iceland Noir

 

 


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: