- Advertisement -

Falleg Cortina 1965 og Studebaker 1948

Hrafn Magnússon skrifaði:

Félagar í Fornbílaklúbbnum áttu þess kost í gærkvöldi að heimsækja Bessastaði og tók Halla Tòmasdóttir á móti gestum.

Ég ætlaði reyndar ekki að taka myndir af bílum félagsmanna en þá sá ég þessa fallegu Cortinu. Þá rifjaðist það upp fyrir mér að minn fyrsti bíll var Ford Cortina árgerð 1965. Sú Cortina var ljósblá á lit og reyndar alveg ný þegar ég keypti hana. Síðan eru liðin heil 60 ár. Alls eignaðist ég fjórar Cortínur og reyndust þær mér allar vel.

Af handahófi læt ég svo fylgja nokkrar myndir frá gærkvöldinu, þar á meða af Studebaker Landcruiser árgerð 1948, sem við bræður ég og Guðmundur eigum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: