- Advertisement -

Heimildarmynd um vita

Ljósmál ehf. vinnur nú að gerð heimildarmyndar um sögu íslenskra vita og verður þetta fyrsta mynd sem er framleidd hér um þetta efni. Myndin verður unnin í samstarfi reyndra innlendra kvikmyndagerðarmanna og Íslenska vitafélagins, með stuðningi Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.

„Saga vitanna spannar yfir rúmlega 80 ára tímabil og er stærri hluti af mótunarsögu íslensks samfélags en almennt hefur komið fram. Hún er saga tækniframfara og þróunar, hluti af sjálfstæðisbaráttu lítillar þjóðar. En hún fjallar einnig um glímuna við óblíð náttúruöfl og sorgir og sigra þjóðar sem hefur ávallt lifað í návígi við hafið,“ segir Dúi J. Landmark, framleiðandi myndarinnar í viðtali við Samtök sjávarúrtvegsfyrirtækja.

Ísland vitavæddist á rúmum 80  árum, og sú uppbygging er stór hluti af framfara- og sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar, sögu hafnamála, útgerðar og fiskveiða og síðst en ekki síðast öryggismálum sjómanna og sæfarenda.  Margir af þeim sem tengjast siglingum og sjávarútvegi þekkja sögu vitana vel og vita hversu mikilvægt þeirra hlutverk var.

Leikstjóri myndarinnar er Einar Þór Gunnlaugsson, framleiðandi er eins og áður segir Dúi J. Landmark, handritshöfundur er Kristján Sveinsson sagnfræðingur, ráðgjafi er Sigurbjörg Árnadóttir, formaður Vitafélagsins, og tónlist semur Ragnhildur Gísladóttir.

Sjá nánar á vef SFS.

Til að gefa gleggri hugmynd um verkefnið má hér sjá kynningarmyndband: http://vimeo.com/114219142

Ljósmynd: Trent McBride

 

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: