- Advertisement -

Heyrist hvorki hósti né stuna úr Valhöll

Enn sem komið er hafa engar fréttir borist frá Valhöll eftir ákall varaþingmannsins Arnars Þórs Jónssonar um að ráðherrar og þingmenn Sjálfstæðisflokksins segi sig úr flokknum. Ekki heldur við þeirri ósk hans að nafni Sjálfstæðisflokksins verði breytt, og hann einungis nefndur Flokkurinn.

Varaformaðurinn, Þórdís K.R. Gylfadóttir, leggur í dag fram frumvarp á þingi um það sem Arnar Þór telur afsal á fullveldi Íslands. Ekki er vitað hversu margir flokksmenn taka undir með Arnari Þór. Þeir eru eflaust einhverjir.

Sem fyrr segir hefur hvorki heyrst hósti né stuna frá forystu flokksins. Víst má telja að Arnar Þór á fá skoðanasystkin í flokknum. Kannski skýrast línur þegar frumvarp Þórdísar K.R. verður rætt á Alþingi.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: