- Advertisement -

„Hræðslan við upprisu láglaunakonunnar er algjör“

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, skrifar:

Þröstur Ólafsson hagfræðingur, fyrrum háttsettur maður innan hreyfingar verkamanna á Íslandi en hann starfaði sem framkvæmdarstjóri Dagsbrúnar, skrifar pistil á Facebook og fjallar í honum um Eflingu og viðræðurnar við Reykjavíkurborg:

Nú höfum við, samninganefnd Eflingar við Reykjavíkurborg, gerst sek um mikinn glæp og af honum munu svo leiða margir aðrir stórglæpir. Enda ætlum við að nota ungbörn sem gísla til að brjóta upp kjarasamninga á landsvísu. Blóðþyrstari tæfur en okkur í Eflingu eru víst vandfundnar; við, fólkið sem hefur helgað sig umönnunarstörfunum, við, fólkið sem gætir barna samfélagsins og menntar, við, fólkið sem annast og aðstoðar gamalt fólk; á endanum erum það við, láglaunafólkið, vinnufólkið, mestmegnis konur, sem að skemmum allt. En ekki hvað, þessar helvítis kellingar alltaf til vandræða.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Getur verið að í veröld Þrastar sé það stórkostlegur glæpur?

Þröstur hefur ákveðið að mikil svívirða sé í því fólgin að við höfum ekki skrifað undir um leið og félögin innan Starfsgreinasambandsins. Ég veit auðvitað ekkert hvað Þröstur veit en ætli hann geri sér grein fyrir því að enn er ekki komin niðurstaða í það hvernig stytting vinnuvikunnar mun koma út fyrir vaktavinnufólk? Afstaða Eflingar-fólks í viðræðunum er sú að ekki komi til greina að skrifa undir samninga fyrr en að allt er frágengið. Getur verið að í veröld Þrastar sé það stórkostlegur glæpur? Virkuðu hlutirnir svoleiðis inn í hreyfingunni þegar hann og samferðamenn hans voru við völd? Og ætli hann geri sér grein fyrir því að tilboð Reykjavíkurborgar til Eflingar var lélegra en lífskjarasamningurinn svokallaði? Tilboð sem hannað var af annari fyrrum háttsettri manneskju innan hreyfingarinnar, en samninganefnd Reykjavíkurborgar er leidd af fyrrum hagfræðingi Eflingar.

Ég veit að það er algjörlega tilgangslaust að velta fyrir sér þankaganginum á bak við þá ótrúlegu andúð á baráttu okkar sem skín í gegnum skrifin en ég stenst ekki mátið. Kvenfyrirlitningin og stéttahrokinn eru svo ótrúleg og stórkostleg, og merkilegt að sjá fyrrum ráðherra Samfylkingarinnar, Árna Pál, láta sér líka við skrifin í Þresti. Halda þessir hrokafullu karlar í alvöru að félaga mínir í samninganefndinni, sá stóri hópur heiðursfólks og dugnaðarforka, séu að fylgja strategíu sem ekki er ákveðin af þeim sjálfum? Kröfugerð Eflingar var samin af fólkinu sem að vinnur vinnuna, fólkinu sem að þekkir nákvæmlega og innilega hvað það þýðir að vera láglaunamanneskja í reykvísku hírarkíunni, með borgarstjóra sem sinn æðsta yfirmann. Samninganefnd Eflingar er mönnuð fólki sem að vinnur við undirstöðustörfin í borginni, fólki af leikskólunum, úr skólunum, sorphirðunni, heimaþjónustunni. Hversu ömurlegt er að verða vitni að því að fyrrum valdamaður úr hreyfingu vinnandi fólks skuli leyfa sér annað eins þvaður og aðra eins illmælgi gagnvart vinnuaflinu.

Því við erum í þeirra huga ekkert nema vinnu-hryssur.

En svona er þetta; ekki aðeins gerðu karlarnir ekkert fyrir okkur láglaunakonurnar þegar þeir réðu, þeir ætla í andstyggilegheitum sínum að gera sitt til að sabótera baráttu okkar fyrir réttlæti og virðingu. Því við erum í þeirra huga ekkert nema vinnu-hryssur, brúkaðar ókeypis í gegnum aldirnar og fáránlegt að borga okkur neitt meira en skít, fáránlegt að leyfa okkur að éta matinn sem að við eldum, fáránlegt að leyfa okkur að komast í gegnum ævina með smá pening til að eyða í okkur sjálfar, fáránlegt að leyfa okkur sjálfum að ákveða hvernig við berjumst og fyrir hverju:

Við hryssurnar sem að frá unga aldri höfum hlaupið hratt og hraðar, við hryssurnar sem að höfum þolað niðurskurð og fjársvelti, við hryssurnar sem að höfum lifað í þeim efnahagslega veruleika að fá útborgaðar 280.000 krónur á mánuði, þrátt fyrir að geta státað af margra áratuga starfsreynslu í umönnunarstörfunum, við hryssurnar sem fengum ekki einu sinni súkkulaðimola í jólagjöf frá borgarstjóra árum saman, við hryssurnar sem að höfum lifað í þeim efnahagslega veruleika að vera á leigumarkaði og eiga eftir 20.000 krónur af launum okkar þegar leigan hefur verið greidd, við hryssurnar sem að höfum þurft að fara í vinnu númer tvö til að eiga möguleika á því að láta enda ná saman og sjá fyrir okkar eigin afkvæmum;
Við hryssurnar eigum auðvitað bara að halda áfram að hlaupa hraðar og halda kjafti, sætta okkur við stöðu okkar í stigveldinu, sætta okkur við að Þröstur og vinir hans í valdastéttinni hafa ákveðið, nú líkt og ávallt, hvað við megum fá og hvað ekki, hvað við megum segja og hvað ekki. Hvað við eigum að láta okkur nægja og hvað ekki.

Forréttindablindan er mögnuð, hræðslan við upprisu láglaunakonunnar er algjör. Svona álíka mögnuð og algjör og harmur atvinnurekenda hlýtur að vera þegar þeir þurfa að horfast í augu við að menn eins og Þröstur eru ekki lengur við völd í félagi láglaunafólks. Hlýtur að vera agalegt að sá tími sé liðinn og komi aldrei aldrei aftur.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: