- Advertisement -

Íslandshótel saka verkfallsverði Eflingar um hótanir og banna frekari heimsóknir

Forsvarsmenn Íslandshótela hafa ákveðið að hleypa verkfallsvörðum Eflingar ekki frekar inn á hótel sín. Í tilkynningu frá Íslandshótelum segir að ástæðan sé sú að verkfallsverðir tóku að hóta starfsmönnum annarra stéttarfélaga sem sannarlega séu ekki í verkföllum, sem og yfirmönnum, aðgerðum.

„Íslandshótel hafa sýnt kröfum Eflingar um verkfallsvöru skilning, jafnvel þó lög kveði ekki á um slíkt, og samþykktu að tveir aðilar frá félaginu gætu sinnt verki sínu og fengju aðgang til eftirlits. Efling svaraði til með því að krefjast þess að stór hópur Eflingarfélaga ættu að fá fullan aðgang að hótelunum, en slíku var hafnað með hliðsjón af því að gestir hótelanna ættu skilið ró og næði, jafnvel þó verkfall væri í gangi,“ segir í tilkynningu.

„Rétt er að ítreka og undirstrika að starfsmenn annarra stéttarfélaga eru sannarlega ekki í verkfalli og voru með engu móti að ganga í störf Eflingarfólks. Efling hefur með þessu farið langt yfir eðlileg mörk og í ljósi aðgerðanna hafa forsvarsmenn Íslandshótela nú ákveðið að taka fyrir frekari heimsóknir fulltrúa Eflingar.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: