- Advertisement -

Íslensk mismunun

Leiðari Davíðs að þessu sinni fjallar um útlendingamál. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, varaformaður Vinstri grænna og félagsmálaráðherra, sækir ekki vinsældir eða viðurkenningar í Hádegismóa. Fjarri því. Mestur hluti leiðarans er tilgangslaust snakk. Hér er lokakaflinn:

„Íslend­ing­ar geta ekki forðast umræðu um út­lend­inga­mál leng­ur og vonað að þetta redd­ist. Þess er eng­inn kost­ur eins og sjá má af því að nú ausa bæði dóms­málaráðherra og fé­lags­málaráðherra bát­inn, ann­ar út fyr­ir en hinn inn fyr­ir! Þol­in­mæði al­menn­ings gagn­vart slíku rugli ofan á annað er á þrot­um.“

Þarna gætir misskilnings. Umræður um útlendingamál eru daglegt brauð. Það er annað að sitt sýnist hverjum.

Hér á eftir fer næst síðasti kafli leiðarans. Þar fjallar ritstjórinn um mismunun:

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Við höf­um van­rækt að læra af reynslu ná­granna okk­ar þó um margt sé vand­inn hinn sami og vax­andi. Sér í lagi þegar ætluð mis­mun­un heima fyr­ir er í raun orðin grund­völl­ur hæl­isveit­ing­ar, ekki of­sókn­ir og bráð hætta. Í því sam­hengi er hollt að muna að sam­kvæmt alþjóðleg­um mæli­stik­um er ekk­ert ríki heims fylli­lega laust við mis­mun­un af öllu tagi. Ekki Ísland held­ur.“

Mikið rétt. Hér er mikil mismunun. Hún er af mannavöldum. Ekki síst ríkisvaldsins. Fjölmörg dæmi eru til um þetta. Það þarf varla að nefna öryrkja, fátækt eldra fólk, börn sem ekki geta tekið þátt í félagslífi sökum fátæktar. Þessi listi er mun lengri. Stjórnvöld vilja ekki leysa þessi vandamál. Mismunun virðist vera kappsmál þeirra sem skipa stjórnarráðið.

-sme


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: