- Advertisement -

Síðasti þingmaðurinn á förum?

Sigurjón Magnús skrifar:

Gangi allt eins og lagt er upp með og Vilhjálmur leiði sinn flokk með ágætum árangri verður hann bæjarstjóri og hættir þá sem þingmaður. Þar með færi þá eini þingmaður Reykjaness af þingi.

Okkur hefur borists ábending um að Sigurður Helgi Pálmason þingmaður Flokks fólksins býr í Reykjanebæ.

Leiðari: Suðurkjördæmi nær hvorki meira né minna en frá Hornafirði og vestur á Reykjanestá. Í kjördæminu býr langflest fólkið á Reykjanesi. Þar sem atvinnuleysi er mest, tekjur lægstar og hlutfallslega langflestir erlendir ríkisborgarar búa. Vegna alls þessa er félaglegur vandi meira en annarsstaðar.

Eftir kosningarnar 2024 fækkaðu þingmönnum Reykjaness. Oddný Harðardóttir er ekki í náðinni hjá Kristrúnu Frostadóttur, Ásmundur Friðriksson var ekki í framboði og Birgir Þórarinsson fékk heiðurssæti á lista Sjálfstæðisflokksins.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Eftir kosningarnar voru aðeins tveir þingmenn frá Reykjanesskaganum. Guðbrandur Einarsson Viðreisn, sem sagði af sér þingmennsku fyrir skömmu og Vilhjálmur Árnason þingmaður og ritari Sjálfstæðisflokksins.

Vilhjálmur lagði kapp á að sigra í prófkjör síns flokk í Reykjanesbæ. Sem og hann gerði. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið í minnihluta þar. Nú á að freista þess að breyta þeirri stöðu og Vilhjálmi er ætlað að snúa taflinu við. Sem eflaust verður erfitt miðað við stöðu flokksins á landsvísu.

Gangi allt eins og lagt er upp með og Vilhjálmur leiði sinn flokk með ágætum árangri verður hann bæjarstjóri og hættir þá sem þingmaður. Þar með færi þá eini þingmaður Reykjaness af þingi. IngveldurAnna Sigurðardóttir lögfræðingur er fyrsti varaþingmaður D-lisa í Suðurkjördæmi. Hún er frá Varmahlíð undir Eyjafjöllum. Gangi þetta allt eftir verður enginn þingmaður frá Reykjanesi þar til árið 2028.

Þannig er nú það.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: