Stjórnmál: Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Samfylkingarinnar, sagði ósatt þegar hún og Pétur Hafliði Marteinsson mættust í Pallborði Sýnar í gær. Það bara má ekki segja ósatt. Kannaðist ekki við að hafa sent tiltekinn tölvupóst. Varð síðar að játa að hún hafi gert það. Virkilega vond staða hjá borgarstjóranum. Það er betra að lifa einföldu lífi. Þá má ekki skrökva.
Í nýrri Vísisgrein skrifar Heiða Björg: „Hvar ætlar tveggja kynja prammi þröngsýni og kynþáttahyggju að koma sér fyrir í næstu Gleðigöngui? Verða Hinsegin dagar haldnir í borginni ef slík sjónarmið verða í næsta meirihluta? Hver hleypir slíku fólki til valda og áhrifa? Ekki ég og ekki Samfylkingin í borgarstjórn Reykjavíkur undir minni forystu.“ Ásáttarvillan er Heiðu ekki Miðjunnar.
Ég bý ekki í Reykjavík og tek ekki þátt í prófkjörinu. Á erfitt að gera upp á milli Péturs og Heiðu. Læt það því vera. Samt verður Heiða Björg borgarstjóri að vanda sig betur. Og aldrei segja ósatt, það er bannað að ljúga.