- Advertisement -

Foringinn sem fælir frá sér fylgi

Sigurjón Magnús Egilsson skrifar:

Guðrúnu gengur vel að halda sínu fólki innan girðingar og þar er fólk staðfast á að hafna aðildarviðræðunum. Nánast öll sem eitt. Annað er upp á teningnum í Hamraborginni þar sem Miðflokkur Sigmundar Davíðs á heima. Þar ríkir lausung.

Össur getur verið skemmtilegur og fyndinn. Eftir Silfur RÚV sem var sýnt á mánudaginn var kallaði hann Sigmund Davíð „Frammíkallinn“. Öll vitum hvers vegna. Maðurinn var með illþolandi dónaskap sem stjórnandi þáttarins hafði enga stjórn á.

Í eitt sinn er SDG gjammaði framm í þegar Þorgerður Katrín ofbauð Kristrún forsætis og sagði stundarhátt: „Leyfðu konunni að tala“.

Pólitísk umræða er á hápunkti. Svo erfið er hún að Hvergerðingar geta varla hist án þess að úr verði rifrildi. Sama mun vera með ættingja Guðrúnar formanns Sjálfstæðisflokksins.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Guðrúnu gengur vel að halda sínu fólki innan girðingar og þar er fólk staðfast á að hafna aðildarviðræðunum. Nánast öll sem eitt. Annað er upp á teningnum í Hamraborginni þar sem Miðflokkur Sigmundar Davíðs á heima. Þar ríkir lausung.

Af fylgjendum flokksins mun þeim hafa fjölgað sem fara ekki að ráðum formannsins dimmraddaða og eru óviss eða ætla hreinlega að segja NEI í kosningunum.

Kannski færi best á að hvíla kallinn og setja Snorra inn á. Hann er jú varaformaður. Vel á minnst, Snorra. Hvar er hann? Steinþegir um þetta mikla álitamál. Snorri á eflaust bágt með ýmislegt en sennilega verst með að þegja.

Niðurstaðan er þessi: Sigmundur Davíð var dóni og hann virðist hreinlega hrekja fólk yfir í hitt liðið.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: